Bílar, háskólasvæði

Þriðjungur svarenda í rannsóknar- og nýsköpunarverkefni á vegum Reykjavíkurborgar og Háskóla Íslands er til í að hætta að sjálfur til og frá vinnu og nýta virka ferðamáta í staðinn, eins og strætó og hjólreiðar. Rannsóknin sýnir einnig að flokkun heimilisúrgangs er orðin rótgróin venja hjá flestum í borginni.

Verkefnið sem um ræðir heitir Tilraunaborgir en Reykjavíkurborg fékk styrk til þess vegna þátttöku í Evrópusamstarfi 112 borga sem stefna að því að verða kolefnishlutlausar og snjallar árið 2030.

Verkefnið gekk út á að kanna venjur og hindranir íbúa og fyrirtækja í borginni í samgöngu- og úrgangsmálum með það fyrir augum að draga hraðar úr losun gróðurhúsalofttegunda. Verkefnið hófst árið 2024 og lýkur á þessu ári.

Niðurstöður úr verkefninu voru nýlega kynntar í umhverfis- og skipulagsráði. Fram kemur á vef Reykjavíkurborgar að þær sýni m.a. að yfir 90% svarenda í könnun á vegum verkefnins flokka reglulega pappír, plast og lífrænan úrgang. Þá flokkar rúmlega helmingur einnig sérstaklega efni eins og lyf, húsgögn og byggingarúrgang. Rannsóknin sýnir enn fremur að flokkunarvenjur Reykvíkinga ráðast fyrst og fremst af aðgengi að innviðum og þjónustu en síður af aldri, kyni eða öðrum lýðfræðilegum þáttum.

Skuggamynd af manni á hjóli, í sólarupprás, fyrir utan Háskóla Íslands

Bíllinn enn langalgengasti ferðamátinn

Rannsóknin leiðir einnig í ljós að einkabíllinn er enn langalgengasti ferðamátinn á höfuðborgarsvæðinu en að þriðjungur þeirra sem aka til vinnu vilji skipta yfir í aðra ferðamáta, sérstaklega almenningssamgöngur, hjólreiðar eða rafknúin létt farartæki. Nær allir svarendur segjast búa nógu nálægt vinnustað sínum til að geta nýtt virka ferðamáta en hindranir eins og kostnaður, áreiðanleiki og skortur á samkeppnishæfum valkostum við einkabílinn koma í veg fyrir að fólk nýti sér slíka ferðamáta.

„Niðurstöðurnar undirstrika að lykillinn felst fyrst og fremst í bættum innviðum, bæði fyrir úrgangsflokkun og vistvænar samgöngur. Íbúar lýsa vilja til breytinga, en leggja áherslu á að lausnirnar þurfi að vera einfaldar, aðgengilegar og henta daglegu lífi fólks,“ segir einnig á vef Reykjavíkurborgar um niðurstöðurnar.

Þverfræðilegur hópur fræðafólks og annars starfsfólks hefur komið að verkefninu fyrir hönd Háskóla Íslands. Þetta eru þau Johanna Raudsepp og Jukka Taneli Heinonen, vísindamenn við Umhverfis- og byggingarverkfræðideild, Ole Martin Sandberg, fræðimaður við Heimspekistofnun HÍ, Hafdís Hanna Ægisdóttir, Ásdís Björk Gunnarsdóttir og Sólrún Sigurðardóttir, sem allar starfa við Sjálfbærnistofnun HÍ, auk Auðar Aðalsteinsdóttur, forstöðumanns Rannsóknaseturs HÍ í Þingeyjarsveit.

Hægt er að kynna sér samantekt á niðurstöðum rannsóknarinnar á vef Reykjavíkurborgar.

Nánar um Tilraunaborgir

Lokaskýrsla verkefnisins

Grein vísindafólks HÍ um rannsóknina

Deila

Efnisorð
Var efnið hjálplegt?

Hvers vegna var efnið ekki hjálplegt?

Takmarkað við 250 stafabil