Skip to main content
1. júní 2026

Þórir Hergeirsson til liðs við íþrótta- og heilsufræði í HÍ

Þórir Hergeirsson til liðs við íþrótta- og heilsufræði í HÍ - á vefsíðu Háskóla Íslands

Hinn heimskunni handknattleiksþjálfari og íþróttafræðingur Þórir Hergeirsson hefur verið ráðinn sem sérfræðingur og gestakennari við námsbraut í íþrótta- og heilsufræði við Háskóla Íslands. 

Þórir er fæddur á Selfossi en hefur búið og starfað sem handknattleiksþjálfari í Noregi sl. 40 ár og m.a. náð einstæðum árangri á heimsvísu með kvennalandslið Noregs í handknattleik. Hann stýrði liðinu á 20 stórmótum, bæði Evrópu- og heimsmeistaramótum og Ólympíuleikum, og náði lið hans í 17 verðlaun á árunum 2009 til 2024, þar af 10 gullverðlaun.

Þórir lauk meistaragráðu í íþróttafræði frá Íþróttaháskólanum í Osló en námið mótaði faglega nálgun hans í þjálfun afreksíþrótta.

Nú fá íþróttafræðinemar Háskóla Íslands að njóta þekkingar hans og reynslu en Þórir mun koma að kennslu bæði í grunn- og framhaldsnámi í íþrótta- og heilsufræði HÍ. Auk þess mun hann halda opna fyrirlestra fyrir þjálfara og annað áhugafólk um afreksþjálfun í íþróttum á vegum rannsóknarstofu í íþrótta- og heilsufræði við HÍ.

Íþrótta- og heilsufræðinámið í HÍ nýtur mikilla vinsælda og hefur á að skipa öflugu liði kennara og vísindamanna. Starfsemin fram fram í glæsilegu húsnæði Menntavísindasviðs í Sögu og í fyrsta flokks íþróttaaðstöðu í Laugardal. Það er mikill fengur fyrir Háskóla Íslands og námsbrautina að fá Þóri í liðið.
 

Þórir Hergeirsson