Árni Daníel Júlíusson, rannsóknasérfræðingur við Sagnfræðistofnun HÍ, og Gylfi Helgason, fornleifafræðingur við Fornleifastofnun Íslands, vinna nú ásamt hópi sérfræðinga að umfangsmikilli rannsókn sem ber heitið Eyðibyggðir miðalda á Íslandi. Saman sinna þeir þverfaglegum rannsóknum í von um að varpa nýju ljósi á hvernig samfélag og byggð þróuðust á Íslandi á tímabilinu 1100-1400.
„Við erum alltaf að rífast, þannig komumst við að niðurstöðum á milli greinanna tveggja,“ segja þeir.
Um fimm þúsund býli á skrá
Árni og Gylfi vinna mikið með skrár Fornleifastofnunar sem geyma upplýsingar um fimm þúsund býli frá upphafi Íslandsbyggðar. Þeir einblína á miðaldir, tímabilið frá 1100-1400, með áherslu á eyðibyggðir en það er yfirheiti sem nær yfir eyðibýli, þ.e.a.s. íbúðarhús, en einnig túngarða og útihús.

Árni Daníel Júlísson, rannsóknasérfræðingur við Sagnfræðistofnun HÍ. MYND/Kristinn Ingvarsson
„Hvert sveitarfélag þarf að skrá fornleifar á sínum svæðum og þau gögn eru oft til en hjá sumum sveitarfélögum eru þær enn óskráðar,“ segir Gylfi. „Skráningin er gerð til að koma í veg fyrir að ný mannvirki séu byggð á svæðum þar sem eru fornleifar eða að það sé þá að minnsta kosti eitthvað gert til að varðveita þær áður en framkvæmdir hefjast.“
Verkefnið er framhald af verkefninu Tvídæla, Two Valleys, sem snerist um að skoða þróun stéttaskiptingar við Eyjafjörð frá 900-1500. Í Eyðibyggðum miðalda er sjónum beint að býlum á svæðinu, meðal annars hversu stór eða ríkuleg þau voru.
Nýta gögn frá fornleifafræðingi og fyrrverandi forseta Íslands
Hugmyndin að verkefninu á rætur að rekja til fornleifafræðingsins og fyrrverandi forseta Íslands, Kristjáns Eldjárn sem var fæddur á bænum Tjörn í Svarfaðardal í Eyjafirði. Sonur hans, Þórarinn Eldjárn rithöfundur, afhenti Árna skjöl sem innihalda skrá yfir eyðibýli í dalnum ásamt inngangi að riti um miðaldir sem Kristján ætlaði að skrifa.

Skjöl frá Kristjáni Eldjárn.
„Ég er alltaf alveg skítnervös að meðhöndla þessi skjöl,“ segir Árni og flettir þeim varlega.
„Hérna er teikning eftir Kristján og hérna er hans rithönd. Það var mikil hvatning í því að fá þessi skjöl en þetta fer örugglega á Þjóðminjasafnið bráðlega.“
Fornleifafræðin styður við sagnfræðina
Aðferðir sagnfræðinnar og fornleifafræðinnar eru nýttar jöfnum höndum í rannsókninni. Gylfi undirstrikar að uppgröftur sé ekki endilega hugsaður til að staðfesta atriði sem sagnfræðingar halda fram. Hann er frekar gerður til að bæta við og skýra betur getgátur og heimildir „Sagnfræðin getur þannig haldið því fram að bóndi hafi verið ríkur en fornleifafræðingar geta svo spurt hvað það þýddi nákvæmlega á þessum tíma.“
Árni bendir á að út frá gögnum sem þeir hafi safnað sé hægt að sjá hvernig byrjað var að byggja á ófrjóum og óheppilegri stöðum um árið 1100. Þensla hafi orðið í íslensku samfélagi með tilheyrandi uppbyggingu, ekki ósvipað því og var fyrir hrunið 2008 þegar allt var í uppsveiflu. Svo hafi svartidauði riðið yfir landið um 1400 og vegna þess hve margir dóu í plágunni fóru fjölmargar jarðir í eyði. Fólkið sem eftir lifði hafi þá flutt sig á bestu jarðirnar. Þessar upplýsingar megi finna í sagnfræðilegum heimildum en hægt sé að staðfesta þær með uppgreftri á jörðum.
Nýta gjóskulög til að áætla tímasetningu atburða
Til að ákvarða nákvæm ártöl atburða er oft horft til á gjóskulaga. Eldgos, eins Heklugosið 1104, skilja eftir sig ummerki víða um land, þar á meðal í Svarfaðardal, sem er enn hægt að greina. Þannig má átta sig á því hvenær býli fóru í eyði með ansi mikilli nákvæmni.
Syðra-Tungukot er eyðibýli sem fannst í Svarfaðardal og er talið hafa verið byggt eftir árið 1104 en farið í eyði fyrir árið 1477. Árni hefur sérstakt dálæti á því býli. „Ég er svo skotinn í sumum jörðum. Maður sér þetta alveg fyrir sér, litlir krúttlegir dalakofar þar sem hefur verið ungur bóndi á lítilli jörð að koma sér fyrir með húsfreyju sína og eignast fyrsta barnið þarna.“
