Veittur hefur verið styrkur úr Almanakssjóði vegna útgáfu Almanaks Háskólans. Almanakið hefur komið út samfellt frá árinu 1837 og nýlega kom 191. árgangur þess út. Almanakið er grundvallarheimild á íslensku um stjörnufræðileg fyrirbæri og um hreyfanlegar dagsetningar í gamla íslenska misseristalinu. Almanak Háskólans er sú heimild sem útgefendur annarra almanaka styðjast helst við.
Almanakið á mjög traustan lesendahóp og upplag þess hefur hin síðustu ár verið um 3.000 eintök að meðtöldu Almanaki Hins íslenska þjóðvinafélags sem hefur heimild til að taka Almanak Háskólans upp í sitt almanak.
Gunnlaugur Björnsson, stjarneðlisfræðingur við Háskóla Íslands, hefur sinnt vinnu við almanakið frá árinu 2009 og tók við umsjón þess árið 2023. Gunnlaugur tók við styrknum úr hendi Silju Báru R. Ómarsdóttur, rektor Háskóla Íslands. Styrkurinn hljóðar upp á 1,1 milljónir króna og er ætlað að styðja við áframhaldandi útgáfu Almanaksins.