Minningarsjóður Erlendar Jónssonar og Mörtu Ágústsdóttur við Háskóla Íslands auglýsir eftir umsóknum um styrki úr sjóðnum.
Tilgangur sjóðsins er að efla stöðu íslenskunnar almennt og styrkja nemendur í íslensku, bókmenntum og ritlist við Háskóla Íslands. Sérstaklega skal stutt við verkefni er lúta að ritfærni og þjálfun nemenda við beitingu íslensks máls sem og við skapandi verkefni nemenda, s.s. ritlistarverkefni og hvers konar bókmenntasköpun á íslensku. Sjóðurinn er opinn nemendum bæði í grunnnámi og framhaldsnámi við Háskóla Íslands.
Í ár er sérstaklega litið til framhaldsnema við úthlutun og styrkir veittir til nemenda í bókmenntum, íslensku og ritlist til að koma rannsóknum sínum og ritverkum á framfæri á íslensku. Markmiðið er að efla íslensku sem bókmennta- og fræðamál. Til greina kemur að styrkja meistaranema til að koma lokaverkefnum sínum í útgáfuhæft form, hvort sem um er að ræða fræðileg eða listræn ritverk, og doktorsnema til að búa kafla eða grein úr doktorsritgerð til birtingar á íslensku.
Styrkina má meðal annars nýta til að standa straum af kostnaði sem fellur til við að fullbúa verk til útgáfu:
- Eigin vinna við að ljúka verkefni.
- Ritstjórnarkostnaður – greiða ritstjóra og prófarkalesara.
- Kostnaður við að þýða verk sem umsækjandi hefur skrifað á erlendum málum yfir á íslensku, eins og t.d. kafla/grein úr doktorsritgerð. Þar er átt við laun þýðanda og ritstjórnarkostnað.
- Kostnaður við að þýða bókmenntaverk eða bókmenntafræðilega ritsmíð úr erlendu máli á íslensku, s.s. í tengslum við lokaverkefni í þýðingafræði, ásamt tilheyrandi ritstjórnar- og yfirlestrarkostnaði.
Umsóknarfrestur er til og með 9. nóvember 2026.
Heildarfjárhæð úthlutunar 2026 er allt að 3.000.000 kr.
Í umsókn um styrk þurfa eftirtalin atriði að koma fram:
- Nafn umsækjanda, kennitala, heimilisfang, sími og virkt netfang.
- Ferilskrá umsækjanda.
- Heiti verkefnis, markmið og vísindalegt, hagnýtt eða bókmenntalegt gildi.
- Hnitmiðuð lýsing á verkefninu, að hámarki 150 orð, sem verður nýtt til almennrar umfjöllunar og kynningar, hljóti verkefnið styrk.
- Veigameiri lýsing á verkefninu, að hámarki ein blaðsíða, þar sem fram kemur lýsing á markmiðinu með verkefninu, framkvæmd þess og mati á afrakstri, ásamt umfjöllun um hvernig verkefnið samrýmist markmiðum sjóðsins.
- Mjög skýr framkvæmda- og kostnaðaráætlun verkefnis.
- Ef um rannsóknarverkefni er að ræða skal gera grein fyrir helstu efnisþáttum þess. Ef um listrænt verkefni er að ræða skal gera grein fyrir viðfangsefni og nálgun.
- Samstarfsaðilar og aðrir styrkaðilar verkefnis ef við á.
- Hvernig styrkurinn verður notaður hljóti verkefnið styrk.
- Upplýsingar um annan fjárhagslegan stuðning.
- Nöfn, símanúmer og netföng mögulegra meðmælenda.
Hámarkslengd umsóknar skal vera þrjár síður fyrir utan fylgiskjöl.
Umsækjendur eru hvattir til að vanda umsóknir sínar.