Stöðumat í íslensku sem öðru máli verður haldið við Háskóla Íslands 1. og 2. október næstkomandi. Þetta er í fyrsta skipti sem stöðumatið er öllum opið en áður hafa verið haldin próf fyrir ákveðna hópa í tengslum við þróun á matinu. Matið fer fram á vegum Miðstöðvar stöðumats í íslensku sem var nýverið komið á fót við Hugvísindasvið Háskóla Íslands og hefur það hlutverk að veita innflytjendum aukið tækifæri til að sýna fram á færni sína í íslensku með áreiðanlegu prófi.
Stöðumatsprófin meta færni á B2 stigi og frestur til að skrá sig í þau er til kl. 12 á hádegi þann 29. september. Próftökugjald er 50.000 kr. sem greiðist við skráningu.
Smellið hér fyrir allar nánar upplýsingar og hlekk á skráningarsíðu. Næsta stöðumat að þessu loknu verður haldið í byrjun árs 2027 og verður auglýst síðar.
Meginmarkmið Miðstöðvar stöðumats í íslensku er að þróa, framkvæma og viðhalda stöðluðum og viðurkenndum stöðuprófum í íslensku sem öðru máli á stigum A2-B2 Evrópska tungumálarammans. Um er að ræða tveggja ára tilraunaverkefni sem byggir á þingsályktun um aðgerðaráætlun í málefnum íslenskrar tungu 2023-2026 og er styrkt af mennta- og barnamálaráðuneytinu.