Ríkissjóður Íslands hefur gengið frá kaupum á hesthúsinu og reiðhöllinni Brúnastöðum á Hólum í Hjaltadal. Kaupin marka stóran og ánægjulegan áfanga fyrir hestafræðideild Háskóla Íslands á Hólum, nemendur hennar og framtíð hestafræðináms á Hólum.
Brúnastaðir hafa frá því húsið var byggt verið í eigu einkaaðila og gegnt mikilvægu hlutverki í námi hestafræðinema. Þar hafa nemendur haft aðstöðu fyrir hross sín samhliða námi og nýtt aðstöðuna í tengslum við verklega kennslu og þjálfun. Með kaupunum eignast skólinn húsnæði sem er órjúfanlegur hluti af námsumhverfinu og fær aukið svigrúm til að þróa aðstöðuna til framtíðar. Yfirfærsla Brúnastaða átti sér stað um sl. mánaðarmót.
Mikilvægur áfangi fyrir nemendur og skólann
Aðstaða fyrir hross nemenda er mikilvægur hluti af hestafræðináminu á Hólum. Þar tengist fræðileg þekking verklegri reynslu þegar nemendur vinna með hross sín í náminu.
„Þessi kaup eru skýr staðfesting á vilja stjórnvalda til að byggja áfram upp öflugt náms- og rannsóknarumhverfi í kringum íslenska hestinn á Hólum. Þau skapa mikilvægan grundvöll fyrir áframhaldandi þróun hestafræðideildarinnar og tryggja að við getum áfram boðið framúrskarandi nám og rannsóknir sem stuðla að velferð íslenska hestsins og styrkja stöðu hans til framtíðar,“ segir Hólmfríður Sveinsdóttir, forseti HÍ á Hólum.
Með breyttu eignarhaldi Brúnastaða getur skólinn sjálfur mótað framtíð þessarar mikilvægu aðstöðu og skipulagt þróun hennar í takt við þarfir námsins. Kaupin eru því jákvætt skref í áframhaldandi uppbyggingu hestafræðideildarinnar og styrkja um leið sérstöðu Hóla sem miðstöðvar menntunar og þekkingar á íslenska hestinum.
Aðstaða sem skiptir máli í daglegu námi
Fyrir nemendur er aðstaðan á Brúnastöðum hluti af daglegu lífi í náminu. Þar þurfa þeir að geta sinnt hrossum sínum samhliða kennslu, verklegum verkefnum og öðrum námskröfum.
María Björk Leifsdóttir formaður nemendafélags og Ellen Duering varaformaður nemendafélagsins telja kaupin á Brúnastöðum vera virkilega jákvætt og stórt skref fyrir skólann. Þetta veitir mikið öryggi fyrir nemendur og skapar bjartsýni fyrir framtíð námsins. Þær sjá mikil tækifæri í þessu og vona að kaupin styrkja bæði námið og verklega kennslu til framtíðar.
Hólar horfa til framtíðar
Hólar hafa um langa hríð verið mikilvæg miðstöð menntunar, rannsókna og þekkingar á íslenska hestinum. Þar hefur byggst upp sérhæfð þekking sem nýtist hestamennsku og atvinnulífi, bæði hér á landi og erlendis. Til að styrkja enn frekar uppbyggingu sérhæfðar þekkingar á Hólum tóku sveitarfélagið Skagafjörður og menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið höndum saman með Háskóla Íslands á Hólum og undirrituðu viljayfirlýsingu um stofnun Rannsóknaseturs íslenska hestsins á Hólum sl. sumar.
Kaupin á Brúnastöðum sýna skýran vilja stjórnvalda um áframhaldandi þróun kennslu og rannsóknastarfsemi í kringum íslenska hestinn á Hólum í Hjaltadal. Með kaupunum á Brúnastöðum og stofnun rannsóknasetursins styrkist grunnurinn enn frekar á Hólum sem miðstöð menntunar og rannsókna á íslenska hestinum.
„Kaupin á Brúnastöðum marka mikilvægan áfanga í þeirri viðleitni okkar að bæta aðstöðu til kennslu og rannsókna fyrir nemendur og starfsfólk Háskóla Íslands á Hólum en það var meðal þeirra markmiða sem við settum okkur við upphaf myndunar háskólasamstæðunnar. Ég fagna þessum mikilvæga áfanga og færi öllum þeim sem lagt hafa hönd á plóg bestu þakkir. Það var ánægjulegt að sjá fjölgun nýnema við HÍH síðastliðið haust. Sú þróun ber vitni um áhuga á námsframboðinu í Skagafirði og traust til skólans. Við höldum nú áfram markvisst að því að byggja upp enn sterkari og samkeppnishæfari háskólasamstæðu,“ segir Silja Bára Ómarsdóttir, rektor Háskóla Íslands.
Kaupin eru því stór áfangi fyrir HÍ á Hólum og hestafræðideildina, en ekki síður fyrir nemendur og íslenska hestinn sem hefur átt sér heimili í Hjaltadal um aldir.
HÍ á Hólum færir Hesthólum ehf., eigendum Brúnastaða, jafnframt innilegar þakkir fyrir samstarfið á liðnum árum. Skólinn hefur haft hesthúsið á leigu um árabil og hefur samstarfið verið mikilvægur þáttur í því að tryggja nemendum og starfsfólki góða aðstöðu til náms og starfa.