Raunvísindastofnun - teikning

Í tilefni 60 ára afmælis Raunvísindastofnunnar hefur verið blásið til tveggja málstofa 10. og 11. nóvember þar sem fjallað verður um rannsóknir við stofnunina í fortíð, nútíð og framtíð í stuttum og fræðandi erindum. Viðburðirnir eru opnir öllum áhugasömum.

Raunvísindastofnun Háskólans var formlega stofnuð 12. nóvember 1966 á grunni Eðlisfræðistofnunar Háskólans og um leið var ný bygging stofnunarinnar á Dunhaga vígð. Síðan þá hefur starfsfólk stofnunarinnar unnið að fjölbreyttum rannsóknum og nýsköpunarverkefnum sem hafa haft mikil áhrif á bæði íslenskt samfélag og alþjóðlegt vísindasamfélag.

Þann 10. nóvember verður boðið upp á málstofuna Rannsóknir við Jarðvísindastofnun í fortíð, nútíð og framtíð en á henni heldur starfsfólk Jarðvísindastofnunar margvísleg örerindi um rannsóknir stofnunarinnar.

Skráning á viðburðinn

Þann 11. nóvember er svo komið að málstofunni Rannsóknir við Eðlisvísindastofnun í fortíð, nútíð og framtíð þar sem starfsfólk sem hefur unnið við Eðlisvísindastofnun heldur örerindi um rannsóknir tengdar lífrænni efnafræði, stjarneðlisfræði, segulmælingum og öllu þar á milli.

Skráning á viðburðinn

Málstofurnar eru haldnar í fyrirlestrasal Eddu og standa frá klukkan 13.00 til 16:00. Fundarstjóri er Hildur Kristmundsdóttir, forstöðumaður Raunvísindastofnunar.

Deila

Efnisorð
Var efnið hjálplegt?

Hvers vegna var efnið ekki hjálplegt?

Takmarkað við 250 stafabil