„Ef fólk er ekki með nægan vöðvamassa til þess að halda sér uppi þá næstum því skiptir ekki máli hvað ég lækna marga sjúkdóma,“ segir Anna Björg Jónsdóttir, aðjunkt við Háskóla Íslands og öldrunarlæknir á Landspítalanum. Hún vinnu ásamt samstarfsfólki að rannsókn sem miðar að því að verja aldrað fólk gegn vöðvatapi með nýrri tegund fótapressu.
Anna Björg segir mikilvægt að eldra fólk sem er veikt hreyfi sig þar sem rannsóknir hafa sýnt að skortur á hreyfingu leiði til þess að fólk tapi vöðvamassa. Hugmyndafræðin á bak við rannsóknina snúist því um að sýna fram á að það að auka vöðvamassann hjálpi viðkomandi til þess að ná heilsu aftur og flýti fyrir batanum.
Taka allan hópinn á Landakoti til rannsóknar
Rannsóknin fer fram á Landspítalanum á Landakoti þar sem finna má veika einskaklinga sem eru 67 ára og eldri sem er helsti markhópur rannsóknarinnar. Anna Björg segir helsta styrkleika rannsóknarinnar þann að þau taki allan þann hóp til rannsóknar og útiloki ekki neinn frá rannsókninni.
„Í rannsókninni erum við að hugsa um veikasta hópinn. Mjög oft þegar er verið að gera rannsóknir eru þeir allra elstu teknir út fyrir sviga og eru ekki með. Eins ef fólk er með mjög marga sjúkdóma eða ef viðkomandi er með heilabilunarsjúkdóm þá eru þeir ekki með í rannsókn. Í okkar rannsókn erum við með alla þessa hópa undir. Við erum að taka hópinn eins og hann er. Þetta er bara raunveruleikinn,“ segir Anna Björg. Hún nefnir þó að að eini hópurinn sem þau geti ekki tekið inn í rannsóknina séu einstaklingar sem hafi farið í aflimun á fótum þar sem rannsóknin byggist á því að prófa ákveðin tæki til þess að auka vöðvamassa í neðri útlimum.