Teymi frá Rannsóknasetri Háskóla Íslands á Húsavík, sem fylgist með líffræðilegum fjölbreytileika og heilsu vistkerfa í hafinu norður af landinu, hefur staðfest að veruleg mengun af völdum örplasts mælist á helstu fæðusvæðum hvala á svæðinu.
Að sögn Belén García Ovide, doktorsnema við HÍ, er þetta í fyrsta sinn sem slík kortlagning er gerð á íslenskum hafsvæðum og niðurstöðurnar sýni að mengunin sé mun meiri en áður var talið.
Rannsóknir hópsins beinast að heilsu vistkerfa sjávar og áhrifum mengunar á lífverur, þar á meðal hvala, sem er lykiltegund í fæðukeðju hafsins. Samhliða er hópurinn að safna gögnum um magn og dreifingu örplasts á yfirborði sjávar.
Belén García Ovide segir hér frá rannsóknunum.
Hæsti styrkur örplasts mældur við Grímsey
Hópurinn hefur fylgst með örplastmengun úti fyrir Norð-Austurlandi frá árinu 2019 og kortlagt svæði sem nær yfir hafsvæði við Grímsey, Eyjafjörð og Skjálfandaflóa. Að sögn vísindahópsins sýna niðurstöðurnar að hæsti styrkur örplasts hafi mælst á afskekktustu stöðunum, meðal annars við Grímsey, sem kom vísindafólkinu á óvart.
„Við sjáum mesta styrkinn á stöðum þar sem við bjuggumst síst við því,“ segir Belén. Hún telur að staðbundnir straumar geti skýrt þessa óvæntu dreifingu, en bendir á að þekking á hafstraumum á svæðinu sé enn takmörkuð. „Við þurfum einfaldlega meiri rannsóknir til að skilja þetta til fullnustu.“