Nemendur Háskóla Íslands og HÍ á Hólum geta nú sótt um þátttöku í Arctic Frontiers Student Forum 2027, alþjóðlegu verkefni sem leiðir saman ungt fólk með áhuga á málefnum Norðurslóða og framtíðarþróun svæðisins.
Student Forum er skipulagt í samstarfi við HÍ á Hólum og veitir nemendum vettvang til að dýpka skilning sinn á málefnum Norðurslóða, taka þátt í þverfaglegum umræðum og byggja upp alþjóðlegt tengslanet.
Verkefnið fer fram í Tromsø í Noregi dagana 31. janúar til 6. febrúar 2027 samhliða Arctic Frontiers-ráðstefnunni. Þar munu nemendur frá Íslandi, Noregi, Grænlandi, Færeyjum og Kanada koma saman til að skiptast á hugmyndum, vinna að lausnum á sameiginlegum áskorunum og móta sýn sína á framtíð Norðurslóða.
Þátttakendur fá jafnframt tækifæri til að taka þátt í Arctic Frontiers-ráðstefnunni 2027 sem ber yfirskriftina Information/Disinformation.
Þátttaka að fullu styrkt
Þátttaka í verkefninu er að fullu styrkt og nær styrkurinn meðal annars yfir ferðakostnað, gistingu, máltíðir og aðgang að ráðstefnunni.
Hverjir geta sótt um?
Nemendur í grunn- og meistaranámi á aldrinum 18–30 ára geta sótt um þátttöku. Verkefnið fer fram á ensku.
Umsóknarfrestur
Umsóknarfrestur er til 5. október 2026 kl. 23:59 (CEST).
Nánari upplýsingar og umsóknarform má finna á vef Arctic Frontiers.