Tónverk sem ætlað er að vekja athygli á áhrifum loftslagsbreytinga á jökla hér á landi eftir pólska tónskáldið Agötu Zubel og byggist á samtölum hennar við Guðfinnu Aðalgeirsdóttur, prófessor í jöklafræði við HÍ, verður frumflutt í Strassborg í Frakklandi þriðjudaginn 10. mars. Guðfinna og samstarfsfólk hennar innan Horizon Europe rannsóknarverkefnisins ICELINK hafa átt í samstarfi við fjölda listamanna að undanförnu, allt í því augnamiði að vekja athygli á hinum miklu áhrifum loftslagsbreytinga á jökla úti um allan heim og knýjandi þörf á að draga úr útblæstri gróðurhúsalofttegunda í heiminum.
Í tilefni þess að í fyrra voru þrjú hundruð ár frá því að hið þekkta verk Árstíðirnar fjórar eftir Antonio Vivaldi leit dagsins ljós var Agötu Zubel ásamt þremur öðrum tónskáldum falið að semja tónverk sem kölluðust á við Árstíðirnar en undirstrikuðu um leið þær breytingar sem eru að verða á árstíðum nú um stundir. Yfirskrift hins nýja verks er [Óvisssar] árstíðir.
Zubel fékk það hlutverk að semja verk tengt Vetrinum í Árstíðunum og ákvað hún að tengja það Reykjavík og þeim umhverfisbreytingum sem eru að verða hér á landi af völdum loftslagsbreytinga. „Þetta nýja verk kallast á við verk Vivaldis og setur það í samhengi nútímans, tíma þar sem árstíðirnar eru að breytast vegna áhrifa af umsvifum mannsins og loftslagskrísunnar,“ segir Zubel í efniskrá með verkinu sem ber heitið Verður vetrinum bjargað?

Zubel kom hingað til landsins í haust og átti samtal við Guðfinnu Aðalgeirsdóttur, prófessor í jöklafræði, um loftslagsbreytingar á Íslandi og áhrif þeirra á hopun jökla á Íslandi, en rannsóknir sýna að flatarmál jöklanna hefur minnkað um rúmlega 2.000 ferkílómetra á einni öld. Zubel ákvað m.a. að fella tölfræði tengda hopun jökla hér á landi inn í verkið.
Í efnisskránni þakkar Zubel Guðfinnu innilega fyrir hennar framlag til verksins. „Þökk sé henni endurspeglar tónlistin ekki hamfarir heldur von og jákvæða orku. Við vitum hvað þarf að gera til að sýna framtíðinni umhyggju. Við höfum þekkinguna og tæknina til að snúa við þessari neikvæðu þróun og það eina sem þarf eru ákvarðanir og sameiginlegur vilji,“ segir Zuber.
Það er strengjasveit ungsveitar Evrópusambandsins sem mun flytja verkið í Pavillon Joséphine í Strassborg þann 10. mars en sveitin fagnar 50 ára afmæli í ár.