Luna Polinelli

Þegar maður hugsar um víkinga, skandinavíska sæfara sem réðu lögum og lofum á hafi úti frá 8. til 11. aldar, er ekki ólíklegt að maður sjái fyrir sér tugi kraftalegra manna róa langskipi á leið í víking til að ræna klaustur og þorp víða um Evrópu. Þessi ímynd er orðin rótgróin í alþjóðlegri dægurmenningu og hefur meðal annars verið fest í sessi í kvikmyndum, sjónvarpsþáttum og bókmenntum.

Siglingar voru augljóslega þrungnar merkingu í menningu Norðurlanda sem sést meðal annars af því að fólk var grafið í bátum. Slíkar grafir eru kallaðar bátskuml og þegar fleyin eru mjög stór, skipsgrafir. Útförum af þessu tagi var hagað með ýmsum hætti og þær tíðkuðust víða. Fjölmargar bátsgrafir hafa fundist á meginlandi Skandinavíu, Íslandi, Bretlandseyjum og við Eystrasalt.

Bátskuml endurspegla bæði heimsmynd og hugsunarhátt fólks á víkingaöld. Fræðafólk hefur deilt um hvort tilgangurinn hafi verið að flytja hinn látna yfir í framhaldslífið eða til að undirstrika stöðu og virðingu hans innan samfélagsins. Líklega á hvort tveggja við. Þótt bátskuml hafi ef til vill ekki verið jafn algeng og dægurmenning nútímans gefur til kynna og ekki er vitað nákvæmlega hvernig þau litu út eru þau orðin órjúfanlegur hluti af sameiginlegri hugmynd fólks um víkingaöldina.

Fá skip, sem grafin hafa verið upp úr jörðu, hafa fundist með jafn vel varðveitt tréverk og Ásubergsskipið fræga í Noregi. Til að skilja betur þennan útfararsið og merkingu hans þurfum við því að spyrja: Hversu algengar voru bátsgrafir á víkingaöld og hvernig litu þær í raun út?

Naglar notaðir til að greina bátsgrafir

Luna Polinelli, doktorsnemi í fornleifafræði við Hugvísindasvið Háskóla Íslands, fæst einmitt við þessar spurningar en hún rannsakar nú bátskuml frá víkingaöld. Bátar geta komið fyrir sem haugfé í kumlum frá víkingaöld og hafa lengi verið þrætuepli meðal fræðimanna.

Luna bendir á að bátskuml geti verið afar ólík og að flestar leifar báta og skipa séu fyrst og fremst greindar út frá nöglum sem finnast við fornleifauppgröft.

„Sums staðar finnast naglarnir á upphaflegum stað og gefa því skýrar vísbendingar um að bátur hafi verið til staðar. Annars staðar hafa naglarnir dreifst og það getur gert slíka greiningu erfiðari. Því þarf að rannsaka naglana með kerfisbundnum hætti til að styðja þá tilgátu að bátur hafi verið til staðar.“

Bátskuml eru mikilvæg fyrir skilning okkar á víkingaaldarsamfélaginu almennt, meðal annars trúarbrögðum, samfélagsgerð, kyngervi og sjálfsmynd. Auk þess geta þau varpað ljósi á alþjóðleg viðskipti og tengsl. Það sem hefur hins vegar torveldað rannsóknir á slíkum kumlum er hve erfitt er að ákvarða hvort bátur hafi verið í tilteknu kumli eða ekki.

„Við þurfum traustari aðferðafræði til að endurmeta tíðni og útbreiðslu bátskumla svo hægt sé að byggja fræðilega umræðu um merkingu þeirra og mikilvægi á traustari grunni í framtíðinni,“ segir Luna.

bátsnaglar
Naglar geta veitt mikilvægar vísbendingar um að bátur hafi verið til staðar í kumli en hægt er að flokka þá eftir lengd og hlutverki.

Bátsprófílar útbúnir út frá lengd nagla

Meginmarkmið rannsóknarverkefnisins er að búa til svokallaðan bátsprófíl með því að skilgreina hvernig safn nagla úr báti lítur út, löngu eftir að tréverk bátsins hefur rotnað. Naglarnir geta því veitt mikilvægar vísbendingar um að bátur hafi verið til staðar í kumli.

„Helsta viðmiðið við gerð bátsprófílsins er lengd þeirra nagla sem finnast við uppgröft. Súðbyrðingar, sem er fræðiheitið yfir þá gerð báta sem notuð var á víkingaöld, voru festir saman með ýmsum gerðum nagla og hægt er að flokka naglana bæði eftir lengd og hlutverki,“ útskýrir Luna.

Bátsprófíllinn er byggður á greiningu á nöglum úr bátskumlum þar sem staðfest hefur verið að bátur hafi verið til staðar. Síðan er hann borinn saman við kuml þar sem vitað er að bátur hafi verið til staðar en þar sem kumlið hefur raskast mikið. Að síðustu er prófíllinn borinn saman við fornleifastaði þar sem deilt er um hvort bátar hafi verið í kumlunum.

Áhugi á Íslendingasögunum leiddi til rannsókna á bátskumlum

Rannsóknin er hluti af doktorsverkefni Lunu í fornleifafræði við Háskóla Íslands. Leiðbeinendur hennar eru Orri Vésteinsson, prófessor í fornleifafræði við Deild heimspeki, sagnfræði og fornleifafræði við Háskóla Íslands, Jan Bill, prófessor og sýningarstjóri víkingaskipasafns Menningarsögusafnsins í Ósló í Noregi, og Vibeke Bischoff, rannsakandi við Víkingaskipasafnið í Roskilde í Danmörku.

Meðal helstu áhugasviða Lunu eru siglingar á víkingaöld og áhrif þeirra á allar hliðar mannlífs, allt frá staðbundnum tengslanetum í litlum samfélögum til umfangsmikilla siglinga um úthöfin, allt frá Norður-Ameríku til Mið-Austurlanda.

Luna segist þó ekki alltaf hafa ætlað sér að rannsaka bátskuml frá víkingaöld. „Ég er með BA-gráðu í ensku og norrænum málum og bókmenntum og í náminu kynntist ég Íslendingasögunum og Eddukvæðum. Ég heillaðist svo af þessum textum að ég ákvað að fara í meistaranám hér á Íslandi í víkinga- og miðaldafræðum,“ segir hún.

Luna var staðráðin í að leggja stund á handritarannsóknir en þar sem námið er þverfaglegt fékk hún hins vegar tækifæri til að kynna sér ólík fræðasvið og komst þá að því að hún hafði mestan áhuga á fornleifafræði.

„Ég hef mikinn áhuga á greftrunarsiðum og það er í raun fátt sem er jafn einkennandi fyrir víkingaöldina og bátskuml. Þess vegna byrjaði ég að rannsaka þau og út frá því þróaði ég með mér brennandi áhuga á öllu sem tengist siglingum og tengslum fólks yfir hafið.“

Verkefnið mun efla rannsóknir og styrkja framtíðarumræðu

Aðspurð um niðurstöður segir Luna að frumprófanir bendi til þess að hægt sé að endurmeta líkur á því að bátur hafi verið hluti af kumli með því að beita þessum nýja bátsprófíl.

„Bátar frá víkingaöld skipa stóran sess í hugum fólks þegar það hugsar um víkingaöldina, jafnvel meðal þeirra sem starfa ekki á þessu fræðasviði,“ segir Luna og heldur áfram: „Þessi rannsókn mun hjálpa okkur að skilja hversu algeng bátskuml voru og hvernig þau litu út. Hún mun einnig bæta við núverandi þekkingu, gefa okkur skýrari heildarmynd af kumlsiðnum og skapa traustari grundvöll fyrir umræðu um þetta viðfangsefni í framtíðinni.“

Deila

Efnisorð
Var efnið hjálplegt?

Hvers vegna var efnið ekki hjálplegt?

Takmarkað við 250 stafabil