Mergæxli

Vísindamenn innan hinnar viðamiklu rannsóknar Blóðskimun til bjargar eru meðal höfunda nýrrar rannsóknar þar sem varpað er skýrara ljósi á það hvernig best sé að greina þá einstaklinga sem eru í mestri hættu á að þróa með sér virkt mergæxli og gætu því haft gagn af snemmbærri meðferð. Greint er frá niðurstöðunum í grein sem birtist nýverið í hinu virta vísindatímariti JAMA Oncology.

Mergæxli er ólæknandi krabbamein í beinmerg sem þróast úr forstigi á mörgum árum. Í rannsóknaverkefninu Blóðskimun til bjargar (The Iceland Screens, Treats, and Prevents Multiple Myeloma – iStopMM), sem er ein viðamesta rannsókn sem farið hefur fram hér á landi, hafa vísindamenn við Háskóla Íslands og samstarfsfólk reynt að komast að orsökum sjúkdómsins og rannsakað hvaða áhrif það hefur að skima fyrir forstigi hans. iStopMM-rannsóknin byggist á gögnum frá yfir 75 þúsund Íslendingum og hefur þegar getið af sér fjölda athyglisverðra rannsóknarniðurstaðna. Þannig hafa þær m.a. leitt í ljós að tugþúsundir einstaklinga um allan heim með mallandi mergæxli (e. smoldering multiple myeloma) gætu verið flokkaðir í mikla áhættu á að þróa með sér mergæxli, þrátt fyrir að raunveruleg áhætta þeirra sé talsvert lægri.

Í rannsókninni sem sagt er frá í JAMA Oncology er fengist við mikilvægt álitaefni varðandi mallandi mergæxli, nánar tiltekið hvernig best sé að finna þá einstaklinga sem eru í mestri hættu á að þróa virkt mergæxli og gætu því haft gagn af snemmbærri meðferð.

„Sérstaða iStopMM í þessari rannsókn er að þar höfum við upplýsingar um einstaklinga sem greindust með mallandi mergæxli við skimun en ekki vegna einkenna eða annarra klínískra ábendinga. Það gefur einstakt tækifæri til að skoða hvernig áhættumat sem notað er fyrir forstig mergæxlis virkar í almennu þýði, en rannsóknir á þessu sviði hafa að mestu byggt á fólki sem greinst hefur innan heilbrigðiskerfisins,“ segir Sigrún Þorsteinsdóttir læknir og nýdoktor við Læknadeild, sem er einn höfunda vísindagreinarinnar í JAMA Oncology. Auk hennar koma þau Cecilie Vælsø Mæng, doktorsnemi við Kaupmannahafnarháskóla, og Sigurður Yngvi Kristinsson, prófessor við Læknadeild og forsprakki Blóðskimunar til bjargar, að rannsókninni ásamt vísindamönnum við fjölmargar norrænar rannsóknastofnanir og háskóla.

Sigrun Þorsteinsdottir

Auk gagna um mallandi mergæxli úr iStopMM-rannsókninni nýtti vísindahópurinn gögn úr DALY-CARE (Danish Lymphoid Cancer Resource), gagnasafni sem náði til allra sem greinst höfðu með mallandi mergæxli í danska heilbrigðiskerfinu á árabilinu 2002 til 2025.

Í rannsókninni voru bornar saman tvær aðferðir til að skilgreina hvaða einstaklingar með mallandi mergæxli teljast í mikilli hættu á að þróa með sér virkt mergæxli. Annars vegar voru notuð viðmið úr AQUILA-lyfjarannsókninni, þar sem áhrif snemmbærrar meðferðar með lyfinu daratumumab voru rannsökuð hjá einstaklingum sem skilgreindir voru með hááhættu á mallandi mergæxli, og hins vegar svokallað 2/20/20-áhættulíkan.

„Samkvæmt viðmiðunum sem notuð voru í AQUILA-rannsókninni voru um þrefalt fleiri einstaklingar með mallandi mergæxli flokkaðir í hááhættuhóp en samkvæmt 2/20/20-áhættulíkaninu. Þegar við skoðuðum síðan raunverulega framvindu sjúkdómsins í danska hópnum kom í ljós að 2/20/20-líkanið afmarkaði minni hóp einstaklinga sem var í mun meiri hættu á að þróa með sér virkt mergæxli. Niðurstöðurnar sýna því hversu mikilvægt er að skilgreina hááhættuhópinn nákvæmlega þegar metið er hverjir gætu haft gagn af snemmbærri meðferð,“ segir Sigrún um niðurstöður rannsóknarinnar í JAMA Oncology.

Niðurstöður rannsóknarinnar hafa mikla þýðingu að sögn Sigrúnar vegna þess að rannsóknir hafa sýnt að snemmbær meðferð getur gagnast ákveðnum einstaklingum með mallandi mergæxli. „Þá verður enn mikilvægara að geta greint sem best hverjir eru líklegir til að hafa gagn af meðferð og forðast að meðhöndla að óþörfu fólk sem er í minni hættu á að þróa virkt mergæxli,“ útskýrir hún.

Greinina í JAMA Oncology má finna hér

Deila

Efnisorð
Var efnið hjálplegt?

Hvers vegna var efnið ekki hjálplegt?

Takmarkað við 250 stafabil