Út er komin bókin Kaldastríðsborg – 1986 eftir Rósu Magnúsdóttur, prófessor í sagnfræði við Háskóla Íslands.

Út er komin bókin Kaldastríðsborg – 1986 eftir Rósu Magnúsdóttur, prófessor í sagnfræði við Háskóla Íslands. Kaldastríðsborg varpar ljósi á Reykjavík á tímum kalda stríðsins og hvernig alþjóðleg átök stórveldanna höfðu áhrif á borgarlíf og íslenskt samfélag. Bókin kemur út á 40 ára afmæli leiðtogafundar Ronald Reagan og Míkhaíl Gorbatsjov um afvopnunarmál í Höfða og fjallar um Reykjavík sem vettvang kalda stríðsins.

Frá lokum síðari heimsstyrjaldar og fram að hruni Sovétríkjanna árið 1991 var Ísland hluti af átakasvæði þar sem hugmyndir, menning og lífsstíll urðu einnig að vígvelli. Hið svokallaða kalda menningarstríð birtist með margvíslegum hætti, allt frá listum og skák til afþreyingar, viðskipta og daglegs lífs.

Bókin segir sögur af fólki, atburðum og fyrirbærum sem setja tímabilið í nýtt samhengi. Þar koma við sögu alþjóðlegir listamenn, skákmenn með sterkar skoðanir, amerískur bjór og ungverskir strætisvagnar – og Reykjavík sem óvæntur vettvangur í átökum tveggja ólíkra heimsmynda.

Sögufélagið gefur bókina út í Seríu Sögufélags.

Efnisorð
Var efnið hjálplegt?

Hvers vegna var efnið ekki hjálplegt?

Takmarkað við 250 stafabil