Sjúkraþjálfun 50 ára

Föstudaginn 18. september fagnaði Námsbraut í sjúkraþjálfun því að 50 ár eru liðin frá því að kennsla í sjúkraþjálfun hófst við Háskóla Íslands. Hátíðardagskrá fór fram af þessu tilefni í Hátíðasal Aðalbyggingar og veiting heiðursdoktorsnafnbótar í sjúkraþjálfun. Var afmælisfögnuðurinn vel sóttur af fyrrum og núverandi kennurum og nemendum í faginu.

50 ára saga uppbyggingar

Í ávarpi Atla Ágústssonar, námsbrautarformanns, kom fram að saga sjúkraþjálfunnar innan Háskóla Íslands væri fyrst og fremst saga uppbyggingar — og saga fólks sem hafði þá framtíðarsýn að sjúkraþjálfarar ættu að geta menntað sig hér á landi.

„Í dag þykir okkur sjálfsagt að sjúkraþjálfun sé fimm ára háskólanám, að kennarar stundi rannsóknir samhliða kennslu og að námið sé hluti af alþjóðlegu fræða- og rannsóknasamfélagi. En ekkert af þessu var sjálfgefið fyrir hálfri öld. Eftir því sem sjúkraþjálfurum fjölgaði og hlutverk þeirra innan heilbrigðiskerfisins varð stærra varð sífellt skýrari þörf fyrir nám hér á landi."

Atli fór í ræðu sinni yfir 5 ára tímabil frá 1970 þar sem unnið var hörðum höndum að undirbúningi náms í sjúkraþjálfun á háskólastigi og komu margir aðilar að því frumkvöðlastarfi.

„Haustið 1976 varð svo stór áfangi. Þá hófst formlegt nám í sjúkraþjálfun við Háskóla Íslands. Fyrstu kennararnir voru Ella Kolbrún og prófessor Marjorie B. Spence frá Háskólanum í Manitoba. Ella Kolbrún varð fyrsti námsbrautarstjórinn, þriðji kennarinn var María Ragnarsdóttir og síðan bættist María Þorsteinsdóttir fljótlega í hópinn. Í kjölfarið fylgdi góður hópur sjúkraþjálfara sem ýmist voru ráðin sem fastir kennarar eða sáu um stundakennslu."

Ein stærsta breytingin í sögu námsins varð árið 2014, þegar náminu var breytt í 3 + 2 skipulag. Það felur í sér þriggja ára BS-nám í sjúkraþjálfunarfræðum og tveggja ára MS-nám í sjúkraþjálfun, sem lýkur með starfsréttindum sem sjúkraþjálfari.

Öflugt rannsóknarstarf innan námsbrautarinnar

Atli Ágústsson námsbrautarformaður sagði í ræðu sinni að mikilvægasta breytingin á þessum fimmtíu árum væri ef til vill sú að sjúkraþjálfun þróaðist úr því að vera fyrst og fremst starfsmenntun yfir í að verða öflug akademísk fræðigrein.

„Rannsóknastarf var erfitt fyrstu árin. Kennarahópurinn var fámennur, kennsluálag mikið og aðstaða til rannsókna takmörkuð. Til marks um hversu ung rannsóknamenning innan sjúkraþjálfunar á Íslandi er, að árið 2000 hafði aðeins einn íslenskur sjúkraþjálfari lokið doktorsnámi. Árið 1993 var ráðinn ungur lífeðlisfræðingur við námsbrautina, Þórarinn Sveinsson, sem hafði þá lokið doktorsnámi frá háskólanum í Manitoba. Hann gegndi lykilhlutverki í uppbyggingu rannsóknastarfs við námsbrautina, samhliða öflugu framlagi til kennslu og stjórnunar. Þórarinn starfaði við námsbrautina fram á mitt ár 2024 og er enn tengdur henni sem prófessor emeritus við Háskóla Íslands. Í dag hafa 22 íslenskir sjúkraþjálfarar lokið doktorsnámi og tveir til viðbótar eru á lokametrunum. Frá aldamótum hefur því rannsóknastarf aukist verulega og tengsl kennslu og rannsókna orðið sífellt sterkari", sagði Atli jafnframt í ræðu sinni og bætti við. „Þegar við berum saman stöðuna árið 1976 og árið 2026 er breytingin gríðarleg. Árið 1976 hófu 18 nemendur fjögurra ára háskólanám með tveimur kennurum í húsnæði við Lindargötu. Í dag býður Námsbraut í sjúkraþjálfun upp á fimm ára háskólanám með fjölbreyttum kennarahópi, öflugu samstarfi við heilbrigðisstofnanir um klíníska kennslu og rannsóknir og víðtækum alþjóðlegum tengslum. Gæði námsins í sjúkraþjálfun fékk jafnframt mikilvæga alþjóðlega viðurkenningu núna í sumar og þessar vikurnar stendur yfir alþjóðlegt vottunarferli á náminu á vegum Heimssambands sjúkraþjálfara."

María Hjálmdís heiðursdoktor

Í lok hátíðardagskrárinnar var Maríu Hjálmdísi Þorsteinsdóttur, fyrrverandi dósent í sjúkraþjálfun við HÍ, veitt heiðursdoktorsnafnbót Læknadeildar en þetta er í fyrsta skipti Námsbraut í sjúkraþjálfun veitir slíka nafnbót. Eins og fram kom hér að framan var María ein af fyrstu kennurunum í sjúkraþjálfun við HÍ en hún hlaut nafnbótina fyrir farsæl störf í þágu háskólans, frumkvöðlastarf og mikilvægt framlag til menntunar sjúkraþjálfara og þróunar fagsins, sem íslenskt samfélag hefur notið góðs af. Er óhætt að fullyrða að María er einkar vel að nafnbótinni komin.

Námsbraut í sjúkraþjálfun er jafnframt óskað innilega til hamingju með hálfrar aldar afmælið og óskað velfarnaðar í framtíðinni.

Hér má sjá myndband um Námsbraut í sjúkraþjálfun sem gert var í tilefni afmælisins

Dagskrá afmælisfundarins

  • Silja Bára R. Ómarsdóttir, rektor Háskóla Íslands, flytur ávarp
  • Hálfrar aldar saga Námsbrautar í sjúkraþjálfun - Atli Ágústsson, námsbrautarformaður
  • Two shores, one profession: From shared roots to common futures for physiotherapy in Canada and Iceland - Sandra Webber, prófessor við sjúkraþjálfunardeild Háskólans í Manitoba
  • Fyrstu fjögur árin - Jakobína Edda Sigurðardóttir, fulltrúi fyrsta árgangs nemenda í sjúkraþjálfun við HÍ
  • Að vera sjúkraþjálfunarnemi í dag - Tómas Helgi Kristjánsson og Vikar Ísak Pétursson, nemendur á 5. ári í sjúkraþjálfun við HÍ
  • Veiting heiðursdoktorsnafnbótar í sjúkraþjálfun - María Hjálmdís Þorsteinsdóttir, fyrrverandi dósent í sjúkraþjálfun við HÍ
  • Tónlistarflutningur - Heiðar Óli Guðmundsson, nemandi á 4. ári í sjúkraþjálfun við HÍ
Efnisorð
Var efnið hjálplegt?

Hvers vegna var efnið ekki hjálplegt?

Takmarkað við 250 stafabil