Komstu inn í rétta framhaldsskólann? Hvað einkennir innritunarkerfið okkar og hvernig hefur það þróast á síðustu áratugum? Er hægt að tala um elítuskóla á Íslandi eða annars staðar Norðurlöndum? Hver er munurinn á finnska og íslenska framhaldsskólakerfinu? Hverjar eru framtíðarvæntingar nemenda af erlendum uppruna við lok grunnskóla? Hvernig er búið að nemendum með þroskahömlun í framhaldsskólakerfinu? Hverjir hagnast mest á innritunarkerfinu eins og það er og hverjir tapa helst? Þessum spurningum var m.a. varpað fram á málþingi RannMennt (Rannsóknarstofa um menntastefnu, alþjóðavæðingu og félagslegt réttlæti) sem fram fór í Stakkahlíð 15. maí í tilefni af nýtútkomnu sérriti Netlu sem ber heitið Framhaldsskólinn, menntastefna og félagslegt réttlæti.
Berglind Rós Magnúsdóttir, prófessor við Menntavísindasvið, er gestaritstjóri þessa rits og ritar jafnframt eina af fimm fræðigreinum sem þar eru birtarásamt finnsku fræðikonunni Sonju Kosunen. Greinin ber heitið Útvalin og úrvals: Stofnanaháttur elítuskóla og vegferð stúdentsefna í Reykjavík og Helsinki, og Berglind kynnti helstu niðurstöður hennar á málþinginu.
Greinin er hluti af stærri rannsókn á íslenska framhaldsskólavettvanginum. Í henni er rýnt í tvo af þeim tíu framhaldsskólum sem tóku þátt í rannsókninni ásamt gögnum frá Sonju Kosunen um tvo sambærilega skóla Í Helsinki. „Markmið rannsóknarinnar er að greina stofnanahátt (e. institutional habitus; sögulegur arfur stofnunar og dýnamík sem tilteknir menningarhópar eða stéttir bera þangað með sér) aðgangsstífra bóknámsskóla á Íslandi og í Finnlandi úr frá bakgrunni og reynslu nemenda og skoða vegferð þeirra milli framhalds- og háskólastigsins. Nemendurnir hafa verið valdir úr stórum hópi ungmenna til að verða „úrvals“ eða „framúrskarandi“ fólk og ákváðum við að skoða upplifun stúdentsefna úr fjórum framhaldsskólum við lok námstímans í gegnum hálfstöðluð einstaklingsviðtöl við tuttugu nemendur á Íslandi og Finnlandi. Niðurstöðurnar benda til að stofnanaháttur skólanna sé keimlíkur en finnsku nemendurnir þurftu þó að laga sig meira að afar þröngum akademískum viðmiðum,“ segir Berglind Rós.
Svigrúm um námshegðun meira hér en í Finnlandi
Á Norðurlöndunum eins og annars staðar hefur aðgengi að bóknámi opnast til muna. Þessi þróun þekkingarhagkerfisins hefur breytt afstöðu milli stofnana og gerenda á menntavettvanginum. Aðgreining milli hópa mótast nú meira innan menntakerfisins, þ.e. milli skólastofnana og greinasviða háskóla, en í gegnum útilokun fólks frá framhalds- og háskólakerfinu.
Á Íslandi virðist meira svigrúm vera um námshegðun og hér vinna nemendur með námi sem tíðkast alls ekki meðal nemenda í hátt skrifuðum skólum í Finnlandi. Einnig virtist félagslíf innan skólanna blómlegra hér á landi. Í greininni segir að samræmt stúdentspróf og þröng inntökuskilyrði finnska háskólastigsins skapi þar mikið aðhald. Stofnanaháttur íslensku skólanna feli engu að síður í sér aðgengi að auðmagni sem nemendur gátu notað til að skapa sér yfirburðastöðu í félagsheimi ungmenna og nauðsynlega yfirsýn og þekkingu á framtíðarmöguleikum um frekara nám og störf. Eins var ljóst að námskrá og áherslur hátt skrifaðra skóla í Helsinki og Reykjavík kristölluðust vel í vali á háskólanámi nemenda, sem flest völdu sér stöðu- eða kanónugreinar en þar er átt við háskólanám með fjöldatakmörkunum eða þröngum inntökuskilyrðum, s.s. læknisfræði og verkfræði, eða krefjast mikillar tileinkunar og hafa almennt gildi, s.s. heimspeki eða sjaldgæf tungumál. Berglind segir niðurstöður gefa vísbendingar um að stofnanaháttur framhaldsskólanna skapi ásamt arfbundnu auðmagni forsendur fyrir tilteknum smekk og aðgengi að háskólanámi og aðgreiningu sem viðhaldi félagslegri mismunun og í þeim skilningi séu skólarnir elítustofnanir.