Nemendur í starfsþjálfun

Háskólanám snýst um svo miklu meira en það sem gerist innan veggja kennslustofunnar segir Ásta Dís Óladóttir, forseti Viðskiptafræðideildar. Það snýst líka um fólkið sem þú kynnist, tengslin sem þú myndar og tækifærin sem verða á vegi þínum. Við Viðskiptafræðideild Háskóla Íslands gefst nemendum kostur á að stíga út í atvinnulífið á meðan á námi stendur, öðlast dýrmæta reynslu undir leiðsögn og byggja upp tengslanet sem getur reynst ómetanlegt til framtíðar, jafnvel skilað nemendum draumastarfinu.

Styrkleikar náms í Viðskiptafræðideild

Einn af styrkleikum námsins við Viðskiptafræðideild er einmitt þessi tenging við atvinnulífið, segir Ásta Dís. „Nemendur læra ekki eingöngu um fjármál, markaðsmál, stjórnun og reikningshald í kennslustofunni, heldur fá einnig tækifæri til að kynnast því hvernig þekkingin nýtist í raunverulegum verkefnum hjá fyrirtækjum og stofnunum.“

Vorið 2027 standa nemendum til boða um 40 starfsþjálfunartækifæri á fjölbreyttum vettvangi. Sjaldan hafa jafn mörg og fjölbreytt tækifæri verið í boði og endurspeglar það öflugt samstarf Viðskiptafræðideildar við atvinnulífið.

„Fyrir BS- og meistaranema er þetta einstakt tækifæri til að víkka sjóndeildarhringinn, kynnast fagfólki, prófa sig áfram á ólíkum starfssviðum og jafnvel uppgötva ný áhugasvið. Slík reynsla getur skipt sköpum þegar kemur að því að móta eigin starfsferil eða gera breytingar,“ segir Ásta Dís

Ásta Dís Óladóttir

Frá fjármálum og ráðgjöf til nýsköpunar og skapandi greina

Ásta Dís segist stöðugt benda nemendum á að reyna að kynna sér nýja hluti, eitthvað sem þau hafa ekki kynnst áður. „Í starfsþjálfun er hægt að fá innsýn í sjávarútveginn, starfsemi Seðlabanka Íslands, taka þátt í verkefnum hjá Deloitte eða KPMG, kynnast nýsköpunarumhverfinu hjá KLAK - Icelandic Startups eða vinna að markaðs- og viðskiptaþróun hjá spennandi fyrirtækjum og stofnunum. Þetta eru aðeins nokkur dæmi um þau tækifæri sem standa nemendum Viðskiptafræðideildar til boða,“ bendir Ásta Dís á. Meðal samstarfsaðila eru einnig Arion banki, Birta Media, Birtingahúsið, Coca-Cola á Íslandi, Hugverkastofa, Iceland Seafood, Intellecta, Nýsköpunarsjóðurinn Kría, Kópavogsbær, Orkuveitan og Teboðið.

Tækifærin ná langt út fyrir hefðbundinn vettvang viðskiptafræðinnar

Nemendur geta einnig öðlast reynslu hjá Listahátíð í Reykjavík, Dansverkstæðinu, Neskirkju og Þjóðminjasafni Íslands þar sem þekking á rekstri, stjórnun og markaðsmálum gegnir mikilvægu hlutverki. Verkefnin spanna meðal annars fjármál, endurskoðun, ráðgjöf, mannauðsstjórnun, markaðsmál, viðskiptaþróun, hagfræði, nýsköpun, rekstur og verkefnastjórnun. „Þessi mikla breidd sýnir hversu víða þekking og færni á sviði viðskiptafræði nýtist og hversu ólíkar starfsleiðir geta opnast fyrir nemendur,“ segir Ásta Dís.

Nemandi í starfsþjálfun
Vorið 2027 standa nemendum til boða um 40 starfsþjálfunartækifæri á fjölbreyttum vettvangi. Sjaldan hafa jafn mörg og fjölbreytt tækifæri verið í boði og endurspeglar það öflugt samstarf Viðskiptafræðideildar við atvinnulífið.

Þegar fræðin birtast í raunverulegum verkefnum

Við Viðskiptafræðideild Háskóla Íslands er lögð áhersla á að tengja fræðilega þekkingu við raunverulegar áskoranir atvinnulífsins. Starfsþjálfun er ein leið til þess að skapa slík tengsl og gefa nemendum tækifæri til að nýta það sem þau læra í náminu í fjölbreyttu starfsumhverfi. Fyrir nemendur felast verðmætin ekki eingöngu í því að öðlast starfsreynslu. Þau fá einnig tækifæri til að kynnast ólíkum starfsgreinum, efla faglega færni, byggja upp tengslanet og öðlast skýrari sýn á eigin áhugasvið og framtíðarmöguleika. Starfsþjálfunin getur þannig orðið mikilvægur hluti af námsupplifuninni og skapað verðmæta tengingu milli náms og framtíðarstarfs.

Öflugt samstarf sem skapar tækifæri

Fjöldi og fjölbreytni starfsþjálfunartækifæranna endurspeglar mikilvægi góðra tengsla milli háskóla og atvinnulífs. „Samstarfið skapar vettvang þar sem nemendur fá að kynnast starfsemi fyrirtækja og stofnana af eigin raun á sama tíma og samstarfsaðilar fá tækifæri til að vinna með nemendum sem koma með nýja þekkingu, ferska sýn og hugmyndir. Það er sérstaklega ánægjulegt að sjá hversu fjölbreytt fyrirtæki og stofnanir vilja taka þátt í að skapa þessi tækifæri og leggja sitt af mörkum til menntunar framtíðar starfsfólks,“ bendir Ásta Dís á.

Með slíkri samvinnu styrkir Viðskiptafræðideild tengsl námsins við atvinnulífið og eykur möguleika nemenda á að öðlast reynslu sem nýtist þeim langt út fyrir kennslustofuna.

Nám í viðskiptafræði snýst ekki aðeins um að skilja hvernig fyrirtæki og stofnanir starfa, segir Ásta Dís, heldur líka um að fá tækifæri til að taka þátt, prófa sig áfram undir leiðsögn sérfræðinga og móta eigin framtíð.

Nemendur sem vilja kynna sér starfsþjálfunartækifærin fyrir vorönn 2027 geta skoðað nánari upplýsingar um stöðurnar og umsóknarferlið hér.

Deila

Efnisorð
Var efnið hjálplegt?

Hvers vegna var efnið ekki hjálplegt?

Takmarkað við 250 stafabil