alice watterson

Þegar Alice Watterson var að alast upp í Skotlandi hefur hún líklega ekki gert sér í hugarlund að hún ætti eftir að starfa í sumum af nyrstu byggðum heims. Með því að sameina sérþekkingu sína á fornleifafræði og sjónrænni miðlun hefur hún fengið tækifæri til að vinna með vísindafólki og frumbyggjasamfélögum í Alaska og Grænlandi við að segja sögur af fornum gripum og horfnum samfélögum með þrívíddarlíkönum, hreyfimyndum og kvikmyndum. Um leið hefur hún lagt sitt af mörkum við að varðveita menningararf sem er í hættu vegna loftslagsbreytinga. Alice starfar sem sérfræðingur við Rannsóknasetur Háskóla Íslands á Höfn og frumsýndi nýlega stutta heimildamynd um lítt þekktan bæ á Suðausturlandi sem eyddist í jökulhlaupi fyrir meira en 150 árum.

Alice er með BA-gráðu í fornleifafræði og meistaragráðu í tölvunarfræðilegri fornleifafræði (e. Archaeological Computing). „Í meistaranáminu fór ég að vinna með þrívíddarlíkön og endurgerð. Fornleifafræði er mjög sjónræn grein og löng hefð fyrir myndsköpun og túlkun fortíðarinnar. Mér fannst sá þáttur einstaklega spennandi,“ segir Alice, sem lauk doktorsprófi frá Glasgow School of Art.

Að námi loknu starfaði hún við samskiptahönnun við Háskólann í Dundee með áherslu á hreyfimyndagerð, þrívíddarlíkön, kvikmyndagerð og vísindamiðlun tengdri fornleifafræði og menningararfi.

Jöklarnir drógu hana til Íslands

Í þessari vinnu kynntist hún kærasta sínum og nú eiginmanni, Kieran Baxter. „Bakgrunnur hans er í hreyfimyndagerð en síðan fór hann út í fornleifafræði. Ég byrjaði hins vegar í fornleifafræði og fór síðan út í hreyfimyndagerð, þannig að við mættumst á miðri leið,“ segir hún brosandi.

Þegar Kieran fékk nýdoktorsstöðu við Rannsóknasetur Háskóla Íslands á Höfn, þar sem hann hefur þróað nýjar sjónrænar leiðir til að varpa ljósi á það hversu hratt landslag íslenskra jökla er að breytast, slóst Alice í för með honum í vettvangsvinnu. Það sem átti að vera nokkurra mánaða dvöl varð heilt ár og að lokum ákváðu þau að flytja til Íslands. „Þegar við fluttum hingað tókst mér að koma nokkrum verkefnum á sviði menningararfs inn í rannsóknasetrið á Höfn,“ segir Alice.

Hjónin vinna mikið saman. „Ég var þegar farin að vinna mikið að rannsóknum á norðurslóðum, sérstaklega í Alaska, og var einnig byrjuð að starfa í Grænlandi. Fyrir mig var því fullkomlega eðlilegt að vera staðsett á Íslandi þar sem það færði mig nær þeim svæðum sem ég var í auknum mæli að vinna á,“ segir hún.

Alice bendir á að verkefni hennar falli vel að áherslum rannsóknasetursins í Hornafirði. „Mörg þeirra fornleifaverkefna sem ég vinn að verða fyrir áhrifum loftslagsbreytinga. Að vera með rannsakendur og verkefni annars staðar á Norður-Atlantshafssvæðinu og norðurslóðum hjálpar til við að tengja þessar sögur saman og betur alþjóðlegu samhengi.“

Lítt þekkt saga Fells og jökulhlaupsins sögð í heimildamynd

Þótt Alice starfi aðallega norðar á hnettinum tengist eitt af nýjustu verkefnum hennar jöklum á Suðurlandi með beinum hætti. Fyrr á þessu ári frumsýndi hún stuttu heimildamyndina Lífið undir Fellinu á Stockfish-kvikmyndahátíðinni, þar sem hún sameinar þekkingu sína á fornleifafræði og sjónrænni hönnun.

Í myndinni er sagt frá stórbýlinu Felli á Breiðamerkursandi sem sópaðist burt í jökulhlaupi árið 1868. Verkefnið varð til eftir samtöl við starfsfólk Vatnajökulsþjóðgarðs. „Margir heimamenn þekkja sögu Fells en flestir ferðamenn aka þarna fram hjá án þess að gera sér grein fyrir þeirri dramatísku sögu sem svæðið geymir,“ segir Alice og leggur áherslu á að í saga Fells feli í sér samspil á sögu manns og náttúru á svæðinu.

Fell teikning
Teikning Alice af Felli á Breiðamerkursandi eins og hún birtist í heimildamyndinni.

Verk eiginmannsins flæddu yfir glæsilegar byggingar Alice

Alice segir verkefnið gott dæmi um samstarf hennar og Kierans. „Við erum með sjónræna framsetningu jökla annars vegar og menningararfs hins vegar og svo er það þessi afar dramatíska saga af því þegar svæðið fór undir vatn.“

Alice endurgerði bæinn fyrir myndina. „Ég eyddi vikum í að endurgera af mikilli nákvæmni þetta fallega hús í þrívídd og síðan kom Kieran, með reynslu sína af sjónrænum tæknibrellum og hreyfimyndum, og lét jökulvatnið flæða yfir það allt,“ segir hún hlæjandi.

Þótt Alice hafi áður gert heimildamyndir var þetta í fyrsta sinn sem hún frumsýndi mynd í stóru kvikmyndahúsi. „Verkefnið vakti hjá mér enn fleiri spurningar því í myndinni kemur fram að fleiri bæir á Breiðamerkursandi hafi á sínum tíma í raun þurrkast út af völdum jökulsins. Mig langar því mjög að snúa aftur að þessari sögu í framtíðinni.“


Fell, flóð
Teiknuð mynd sem sýnir hvernig jökulflóðið æðir að bænum Felli.
Heimildamyndin Lífið undir Fellinu

Hækkandi hitastig ógnar uppgraftarsvæðum

Verkefni Alice eru eins fjölbreytt og þau eru mörg. Undanfarin ár hefur hún bæði starfað sem fornleifafræðingur og kvikmyndagerðarkona í suðurhluta Grænlands, á svæði sem kallast Kujataa, þar sem norrænir bændur bjuggu fyrir um þúsund árum. Í stuttri heimildarmynd sinni um verkefnið GREENLAND RESPONSE fjallar Alice um þessa búsetuarfleifð „út frá sjónarhorni fornleifafræðinnar og fylgi eftir alþjóðlegum rannsóknahópi sem kappkostar að grafa upp lífrænar minjar á norrænum búsetustöðum sem eyðast hratt vegna hækkandi hitastigs á jörðinni,“ eins og hún lýsir því sjálf.

Alice vann að þessu verkefni fyrstu sumurin eftir að hún flutti til Íslands. „Vegna bakgrunns míns í fornleifafræði nýtist ég einnig við vettvangsvinnu. Það hjálpar mér að miðla rannsóknum annarra til almennings,“ segir Alice, sem er bókstaflega með múrskeiðina í annarri hendinni og myndavélina í hinni. „Maður reynir bara að passa sig að fá ekki leðju á búnaðinn,“ segir hún og hlær.

Hún bendir á að uppgröftur á minjum norrænna manna í Grænlandi eigi sér nær hundrað ára sögu. „Í upphafi fundust fjaðrir, leður og alls konar lífrænt efni. Nú er margt af því horfið. Sum svæðin voru vatnsósa eða í sífrera en þegar þau þorna upp eyðast þau mjög hratt. Þetta tengist beint áhrifum loftslagsbreytinga á norðurslóðum og við erum að reyna að skrásetja það sem eftir er af fornminjum þarna og það sem áður hafði verið grafið upp og hvernig það hefur breyst,“ segir hún um verkefnið.

Alice Watterson myndar fornleifafræðing
Alice að störfum með myndavélina í Grænlandi.
alice watterson

Miðlar gripum í gegnum stafrænt safn í Alaska

Það virðist vera eitthvað við norðrið sem heillar Alice. Til marks um það hefur hún frá árinu 2017 einnig starfað í Alaska við Nunalleq-fornleifaverkefnið, sem dregur nafn sitt af stóru samnefndu uppgraftarsvæði, en Nunalleq og merkir „gamalt þorp“ á máli Yup’ik-frumbyggja. Svæðið er staðsett nálægt frumbyggjaþorpinu Quinhagak í suðvesturhluta Alaska. Uppgröftur hófst þar árið 2009 og hefur veitt einstaka innsýn í líf fólksins sem þar bjó í aldanna rás.

Markmið verkefnisins er að varðveita muni sem eru í hættu vegna loftslagsbreytinga. „Samkvæmt hefðbundnum viðhorfum ætti ekki að grafa upp grafarsvæði forfeðra en Yup’ik-samfélagið á staðnum ákvað að leita til fornleifafræðinga þegar fólk sá gripi byrja að skolast fram á ströndina vegna rofs. Samfélagið ákvað að bregðast við til að varðveita þennan menningararf fyrir komandi kynslóðir,“ útskýrir Alice.

Alice hefur unnið að verkefninu í nærri tíu ár. Upphaflega kom hún að því til að útbúa kennsluefni fyrir börn um verkefnið en síðar stýrði hún hönnun stafræns safns fyrir gesti um allan heims sem vilja fræðast um verkefnið, The Nunalleq Digital Museum. Sumir gripanna sem fundust við uppgröftinn eru einnig til sýnis í gömlu leikskólahúsi sem hefur verið breytt í fornleifa- og menningarmiðstöð í smábænum Quinhagak.

„Þetta snýst um jafnvægi. Annars vegar viljum við gera efnið aðgengilegt öllum, hvar sem þeir eru í heiminum. Hins vegar viljum við styðja heimamenn með því að útbúa efni fyrir skólana og tryggja að þekkingin haldist innan samfélagsins svo safnið geti starfað til lengri tíma og verið sjálfbært.“

Samstarf við heimamenn

Samstarf við frumbyggjasamfélög í Grænlandi og Alaska var ein helsta ástæða þess að Alice laðaðist að rannsóknum á Norðurslóðum. „Það er auðvitað stórkostlegt frá fornleifafræðilegum sjónarhóli að vinna með svo ótrúlega vel varðveittar minjar. Það sem er hins vegar enn merkilegra er hvernig við vinnum með heimafólki að því að segja sögur þessara muna,“ segir hún.

Hún tekur fram að hún hafi séð hversu mikið samfélagið sjálft fái út úr fornleifafræðinni en það hafi hún ekki áður upplifað með sama hætti. „Ég er ekki að segja fornleifafræðin í Skotlandi sé ekki líka frábær. Þar eru mörg stórkostleg samfélagsverkefni en þegar ég fór að vinna í Alaska fann ég að þetta var nákvæmlega það sem ég vildi gera. Ég vinn við sjónræna framsetningu og miðlun fornleifafræði og að geta skapað myndir sem hjálpa fólki að ímynda sér fortíðina og útbúið efni fyrir skóla finnst mér afar mikilvægt starf,“ segir hún.

Alice og samstarfsfólk hennar hefur unnið með heimamönnum að sýningum og skipulagt vinnustofur sem tengjast hefðum svæðisins, meðal annars um trommugerð, spjótagerð og fatasaum. „Verkefnið hefur staðið yfir frá árinu 2009 svo það eru börn á staðnum sem hafa alist upp með fornleifaverkefninu. Þegar safnið var opnað árið 2018 héldum við vinnustofu með krökkunum þar sem þau ákváðu að semja lag og dans fyrir opnunina. Þannig erum við að nota fornleifaarfinn sem innblástur.“

Að mati Alice er mikilvægt að heimamenn séu virkir þátttakendur í verkefnunum. „Við vinnum á þann hátt að fólk upplifi að það sé hluti af verkefninu þannig að allir fái tækifæri til að tjá sig og taka þátt í að móta söguna um sinn eigin menningararf í stað þess að einhver utanaðkomandi komi og túlki allt fyrir þeirra hönd,“ segir Alice sen vinnur nú einnig að stuttri heimildarmynd um björgunaruppgröftinn á Nunalleq-svæðinu í sumar.

Alice í Nullateq
Alice skoðar hér muni sem fundist hafa í Nunalleq-fornleifaverkefninu í Alaska ásamt samstarfskonu og heimamanni.

Að „sprengja í sundur“ kajaka í þrívídd

Þegar Alice er innt eftir því hvers vegna vísindamiðlun skipti hana svona miklu máli bendir hún á að saga fornleifafræðinnar hafi ekki alltaf verið falleg. „Samkvæmt hefðinni snerist fornleifafræði oft um að utanaðkomandi aðilar kæmu inn og öfluðu upplýsinga án þess að deila þekkingunni. Núna reynum við eftir fremsta megni að vera meðvitaðri í vinnu okkar og ekki bara taka upplýsingar frá fólki eða bókstaflega fljúga inn og hverfa síðan aftur. Alaska-verkefnið er gott dæmi um þetta vegna þess hversu lengi það hefur staðið yfir,“ segir hún.

Innt eftir því hvaða verkefni séu fram undan segir Alice að hún og samstarfsfólk hennar séu sífellt að leita leiða til að fjármagna rannsóknir sínar áfram, eins og flest vísindafólk kannast vel við. „Ég fer aftur til Grænlands í næsta mánuði til að vinna að nýju verkefni með Þjóðminjasafni Grænlands sem snýst um kajaka, sem eru eitt sterkasta tákn grænlenskrar menningar.“

Verkefnið felst í að rannsaka mismunandi kajakahefðir víðs vegar um Grænland. „Ég hef verið að búa til svokölluð sprengilíkön (e. exploding models) sem afhjúpa hvernig bátarnir eru uppbyggðir,“ segir hún og vísar í hina sjónrænu vinnu sem hún kemur að með safninu.

„Í slíkum líkönum er hægt að fjarlægja skinnklæðninguna af grindinni og skoða einstaka hluta kajaksins. Þetta er eitt af því skemmtilega við að vinna með þrívídd og sjónræna miðlun. Þá er hægt pæla í hvernig á að túlka og útskýra hluti á hátt sem er einfaldlega ekki hægt með raunverulegum gripum. Söfn eru yfirleitt ekki hrifin af því að fólk taki gripi í sundur en í þrívídd getum við gert það – gert hið ósýnilega sýnilegt.“

Ævintýrabarn á leiðinni

En stærsta „verkefnið“ sem fram undan er hjá Alice og eiginmanni hennar, Kieran, tengist ekki fornleifum eða kvikmyndagerð. Þau eiga von á barni. „Vettvangsvinnan var áhugaverð í ár. Fólk fór í hádegismat þegar ég sagði að kominn væri matmálstími, sem var mjög notalegt,“ segir Alice brosandi.

Síðasta vettvangsferðin er í október en svo hyggst hún verja vetrinum á Íslandi. „Þetta barn hefur nú þegar komið til Alaska og Skotlands, fer til Kaupmannahafnar í næstu viku og hefur líka verið í Grænlandi. Það hefur skoppað um á bátum í sumar, hangandi í naflastrengnum þannig að þetta er orðið sannkallað ævintýrabarn nú þegar,“ segir hún að lokum og hlakkar til komandi mánaða.

Alice Watterson á báti við Grænland
Alice í einni af bátsferðum sínum á Grænlandi.

Deila

Efnisorð
Var efnið hjálplegt?

Hvers vegna var efnið ekki hjálplegt?

Takmarkað við 250 stafabil