Ný rannsókn vísindamanna við Háskóla Íslands á Hólum, Háskóla Íslands og innlendar og erlendar samstarfstofnanir sýnir að marktækt meira kolefni mældist í jarðvegi í landi þar sem beit hefur verið samfelld en á svæðum sem hafa verið friðuð fyrir beit. Þetta gengur þvert á fyrri hugmyndir vísindamanna um að beit sé skaðleg bæði plöntum og vistkerfum. Rannsóknin er sú fyrsta sem gerð er hérlendis á áhrifum friðunar lands fyrir beit á kolefnisbúskap vistkerfa og niðurstöður hennar birtust nýverið í vísindatímaritinu Global Change Biology Communications.
„Síðastliðna áratugi hefur þeirri hugmyndafræði verið haldið mjög á lofti hérlendis að beit sé skaðleg bæði plöntum og vistkerfum og friðun úthaga fyrir beit hefur verið ein af megináherslum í náttúruvernd á Íslandi. Fáar rannsóknir hafa hins vegar verið gerðar á áhrifum beitar á plöntur og vistkerfi hérlendis,“ segir Anna Guðrún Þórhallsdóttir, prófessor í náttúruauðlindum við Háskóla Íslands á Hólum og einn höfunda rannsóknarinnar.
Án beitar hverfur úthagi og trjákenndur gróður tekur við
Anna Guðrún bendir á að niðurstöður erlendra rannsókna á síðustu tveimur áratugum sýni að án beitar hverfi úthaginn og trjákenndur gróður taki við en með úthaga er átt við óræktað beitiland utan túns og engja. Um helmingur þurrlendis jarðar er skilgreindur sem úthagi og á Íslandi er að finna víðáttumesta úthaga Norður-Evrópu, að sögn Önnu Guðrúnar, sem samanstendur að mestu af graslendi og mólendi og mósaík þessara gróðurlenda. „Graslendi og mólendi eru vistgerðir sem er viðhaldið með beit, slætti eða bruna. Ef þessara þátta nýtur ekki við þá taka runnar og trjákenndur gróður yfir,“ segir hún.
Anna Guðrún bætir við að þegar úthaginn víki fyrir trjákenndum gróðri hafi það víðtæk áhrif á lífríkið og að þær fjölmörgu tegundir plantna og dýra sem þar eigi sitt búsvæði láti undan síga og hverfi. „Í dag er beit til að viðhalda úthaga ein megináherslan í náttúruvernd í Evrópu,“ segir hún og vísar þar m.a. í umsagnir Matvælastofnunar Sameinuðu þjóðanna í Evrópu: Europe’s Grasslands: A Different Rangeland Story.