Birna Þórisdóttir

Fyrstu niðurstöður nýrrar rannsóknar innan Háskóla Íslands á tilbúnum barnamat benda til þess að aðeins lítill hluti barnamatar sem fæst í íslenskum verslunum standist næringarviðmið Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar (WHO).

Að rannsókninni stendur Birna Þórisdóttir, dósent við Matvæla- og næringarfræðideild við Heilbrigðisvísindasvið HÍ. „Markmið rannsóknarinnar var að safna gögnum um barnamat á íslenskum markaði veturinn 2024−2025 og meta hvort vörurnar uppfylltu viðmið um næringarsamsetningu og markaðssetningu barnamatar (Nutrient and Promotion Profile Model),“ segir Birna en rannsóknin brúar bilið milli næringar ungbarna og lýðheilsu.

Viðmiðin voru þróuð af Evrópuskrifstofu Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar til að meta næringargæði og markaðssetningu á tilbúnum barnamat og drykkjarvörum fyrir ungbörn og smábörn á aldrinum 6 til 36 mánaða. Viðmiðin eru meðal annars nýtt til að styðja við lýðheilsumarkmið um mataræði og þroska ungbarna.

Bjuggu til gagnagrunn með upplýsingum um barnamat

Rannsóknin á sér 10 ára aðdraganda. Haustið 2016 var Birna að vinna úr rannsóknargögnum um mataræði íslenskra barna á aldrinum 6−12 mánaða.

„Gögnin sýndu að mataræði barnanna byggðist að hluta til á tilbúnum barnamat en ég gat ekki reiknað út neyslu á orku og næringarefnum með gagnagrunninum sem þá var til þar sem hann innihélt ekki upplýsingar um barnamat.“

Birna fékk því Tinnu Óðinsdóttur, verkefnisstjóra á Rannsóknastofu í næringarfræði, sem þá var meistaranemi í næringarfræði, til að safna gögnum um tilbúinn barnamat á íslenskum markaði og búa til gagnagrunn með upplýsingum um vörutegundir og næringarinnihald þeirra.

„Þetta reyndist mjög skemmtilegt verkefni því haustið 2016 vorum við báðar með drengi á fyrsta ári og rannsóknarefnið stóð okkur því sérstaklega nærri. Við Tinna endurtókum þessa gagnasöfnun haustin 2019 og 2021 og birtum grein ásamt Ingu Þórsdóttur, prófessor emeritu við Matvæla- og næringarfræðideild, árið 2023 sem sýnir miklar breytingar á framboði tilbúins barnamatar á Íslandi á þessu tímabili, það er milli 2016 og 2021,“ útskýrir Birna.

Meistaranemar í næringarfræði koma að rannsókninni

Auk Birnu koma að nýju rannsókninni tveir meistaranemar í næringarfræði, þau Bjarki Freyr Magnússon og Ríkey Sigurgeirsdóttir. Birna fékk Bjarka til liðs við sig haustið 2024 til þess að framkvæma fjórðu gagnasöfnunina. Gagnasöfnunin stóð fram á vor 2025 og í þetta sinn var merkingum á umbúðum bætt við gagnagrunninn. Bjarki vinnur nú að meistararitgerð sinni, sem byggir á rannsókninni, undir leiðsögn Birnu og Ólafar Guðnýjar Geirsdóttur, prófessors við Matvæla- og næringarfræðideild. Loks bættist Ríkey í hópinn en hún kom inn sem starfsmaður síðasta sumar fyrir tilstilli styrks úr Rannsóknasjóði HÍ. Ríkey bar vörurnar saman við viðmið Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar á móti Bjarka og aðstoðaði við úrvinnslu gagna.

Íslenskar verslanir selja um 400 tegundir af tilbúnum barnamat

Gögnin sem rannsóknarhópurinn hefur safnað saman benda til þess að um 400 tegundir af tilbúnum barnamat fáist í matvöruverslunum á Íslandi. Þar af eru yfir 120 tegundir af mauki í „skvísum“ og rúmlega 110 tegundir af svokölluðum fingramat eða vörum sem börn geta tínt upp í sig sjálf.

„Þetta eru ávaxtagúmmí í litlum bitum, rúllum eða stöngum, snakk, nokkurs konar frauð ásamt kexlíkum vörum. Aðrar algengar tegundir eru mauk í krukkum, grautarmjöl og mjólkurblöndur,“ útskýrir Birna.

Hún segir að það hafi reynst rannsóknarhópnum nokkuð flókið að bera innihaldslýsingar og merkingar á vörunum saman við viðmiðin.
„Bjarki og Ríkey gerðu þennan samanburð hvort í sínu lagi og báru svo saman bækur sínar. Í ljós kom að þau þurftu að gera ýmsar lagfæringar áður en lokaniðurstöður lágu fyrir. Það flækir málið að viðmiðin geta verið ólík milli tegunda af barnamat og eiga ekki alltaf við. Til dæmis eru mjólkurblöndur ekki mátaðar við viðmið fyrir næringarsamsetningu þar sem þær fylgja strangari reglugerðum en aðrar tegundir matvæla. Þær eru því taldar uppfylla viðmiðin fyrst þær eru leyfðar á markaði,“ útskýrir Birna.

Barn að borða

Fáar vörur standast viðmið um fríar sykrur og orkuþéttni

Sem fyrr segir benda fyrstu niðurstöður til þess að engin tegund af skvísum eða fingramat uppfylli viðmið um næringarsamsetningu og að einungis fjórðungur mauks í krukkum og um þriðjungur grautarmjöls standist viðmiðin. Aðspurð um hvað valdi að því að þessar vörur uppfylli ekki skilyrði Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar segir Birna að viðmiðin séu tiltölulega ströng. Algengast sé að vörur falli á viðmiðum um fríar sykrur og orkuþéttni.

„Á mörgum umbúðum stendur að barnamaturinn innihaldi engan viðbættan sykur og það er í sjálfu sér rétt. En við nánari skoðun innihalda þær þó oft mikið af fríum sykrum. Fríar sykrur myndast til dæmis þegar ávextir eru unnir í fíngert mauk. Þá losna sykrur úr frumuveggjum ávaxtanna og kallast þá „fríar sykrur“, en þær frásogast mun hraðar en ávaxtasykur í heilum ávöxtum og hafa önnur áhrif á líkamann, svipuð áhrif og viðbættur sykur. Orkuþéttni vísar til þess hversu mikil orka er í tilteknu magni af mat. Ef barnamatur er ekki nægilega orkuþéttur eru líkur á að lítill magi ungbarnsins fyllist áður en barnið hefur fengið þá orku og næringarefni sem það þarfnast.“

Niðurstöðurnar benda enn fremur til þess að engin þessara vara uppfylli viðmið um markaðssetningu. „Sem dæmi er nafn þessara matvara stundum órætt eða ekki augljóst hvert aðalinnihaldsefnið er. Einnig geta merkingar eða upplýsingar á umbúðunum gefið til kynna að vörurnar hafi eiginleika sem rannsóknir hafa ekki rennt stoðum undir og stundum eru upplýsingarnar hreinlega misvísandi, til dæmis þegar segir að varan innihaldi engan viðbættan sykur þegar hún inniheldur mikið af fríum sykrum,“ útskýrir Birna.

Hjálpa foreldrum að rata gegnum frumskóg matvæla

Þessar niðurstöður gefa ákveðnar vísbendingar um innihald og gæði barnamatvara sem nú eru á markaðnum en Birna ítrekar þó að hópurinn sé enn að vinna úr gögnunum og að nákvæmari niðurstöður verði kynntar þegar þær liggja fyrir. Rannsóknin hefur ótvírætt samfélagslegt gildi þar sem þær geta hjálpað foreldrum að velja betri kosti fyrir börn sín.

„Flest smábörn fá tilbúinn barnamat að einhverju marki og því er mikilvægt að foreldrar geti ratað í gegnum þennan frumskóg ólíkra vara,“ segir Birna að lokum.

Deila

Efnisorð
Var efnið hjálplegt?

Hvers vegna var efnið ekki hjálplegt?

Takmarkað við 250 stafabil