Skip to main content
11. nóvember 2025

Listamenn og vísindamenn taka höndum saman á vísindaviku Grænlands

Listamenn og vísindamenn taka höndum saman á vísindaviku Grænlands - á vefsíðu Háskóla Íslands

Listamenn innan samstarfsverkefnisins Sermit | Jöklar, vísindafólk á vegum evrópska rannsóknarverkefnisins ICELINK, sem Háskóli Íslands tekur þátt í, og aðstandendur alþjóðlegs lista yfir hverfandi jökla taka höndum saman á vísindaviku Grænlands vikuna 10.-14. nóvember og varpa ljósi á blákaldan veruleika um áhrif loftslagsbreytinga á jökla. Um leið ætlar hópurinn hvetja til umræðu um þau djúpstæðu áhrif sem bráðnun jökla hefur fyrir svæðið og hvernig samfélög geta aðlagað sig að breyttum aðstæðum.

Vísindavika Grænlands er haldin annað hvert ár í Nuuk, höfuðborg Grænlands, og boðið er upp á fjölmarga fræðsluviðburði, vinnustofur og málstofur sem eru opnar almenningi. Dagana 10. til 14. nóvember mun áðurnefndur samstarfshópur fara með gesti hátíðarinnar í tilfinningaþrungið ferðalag í skugga hlýnandi loftslags sem spannar allt frá bráðnun staks ísmola og sívaxandi lista yfir hverfandi jökla úti um allan heim yfir í rannsóknir ICELINK-hópsins sem miðar að því að auka skilning á framtíð jökla á Grænlandi og Íslandi og aðlögun að þeim breytingum sem eru að verða á svæðinu.

Vísindamenn hafa um langt skeið varað við því hvaða afleiðingar brennsla jarðefnaeldsneytis hefur og sömuleiðis við því massatapi jökla og íshvelja sem verður um allan heim vegna loftslagsbreytinga. Hopun jökla á Grænlandi og Íslandi hefur í för með sér að meira vatn rennur út í Norður-Atlantshafið en áður og það gæti haft áhrif á loft- og hafstrauma í framtíðinni. Afleiðingar þessara breytinga eru ekki nógu vel þekktar en sveitarfélög og ríkisstjórnir þurfa að búa sig undir þær og þar kemur rannsóknaverkefnið ICELINK inn í myndina. Markmið þess er að auka þekkingu og skilning á því hvernig jöklar á Norður-Atlantshafssvæðinu bregðast við loftslagsbreytingum og hvaða áhrif það mun hafa á svæðisbundið loftslag og vistkerfi.

Aðstandendur ICELINK vinna náið með hagaðilum, eins og veitufyrirtækjum, ríkisstofnunum og atvinnulífi til að tryggja að sú þekking sem verður til innan verkefnisins nái til þeirra sem vinna að því að undirbúa samfélög undir þær breytingar sem munu verða.

Hér er um að ræða mikilvæg og áríðandi skilaboð sem þó eiga það til að berast að daufum eyrum. Þegar viðvörun hefur verið gefin út svo oft að hún hættir að vera ógnvekjandi kallast það viðvörunarþreyta en aðstandendur listamannasamstarfsins Sermit | Jöklar vilja breyta því. Með því að blanda saman sjónrænni list og upplifun er ætlun þeirra að byggja upp tilfinningatengsl hjá gestum vísindavikunnar við hverfandi jökla. Á sýningu sem fram fer í vikunni miðlar hópurinn rannsóknum og markmiðum ICELINK-verkefnisins ásamt því að vera með til sýnis jökulísskúlptúr sem bráðnar bæði fyrir augum gestanna og undir smásjá.

Listamennirnir munu einnig forsýna stuttmynd sína „Bye Bye Glacier“, listaverk sem varpar ljósi á það hvernig forn steinefni, setlög og loftbólur losna úr læðingi þegar jökulís bráðnar og leysir þannig upp aldalöng verk náttúrunnar og leiðir áhorfandann í gegnum sorgarstig þegar jökull hverfur. Einnig verður til sýnis vefsíða sem geymir Alþjóðlegan lista yfir hverfandi jökla þar sem finna má sögur af þeim fjölmörgu jöklum sem lýst hefur verið yfir opinberlega að séu horfnir eða að hverfa vegna loftslagsbreytinga. Markmiðið með þessum gjörningum er að tengja fólk betur við rannsóknaverkefni eins og ICELINK sem hefur það markmið að hjálpa samfélögum að bæði sigla í gegnum og aðlagast þeim breytingum sem fylgja loftslagsbreytingum.

Samstarf lista og vísinda verður sífellt mikilvægara, ekki aðeins vegna þess að það getur spornað gegn viðvörunarþreytu heldur auðgar það rannsóknaverkefni með skapandi og listrænum þáttum, víkkar út miðlun, stuðlar að umræðum og nýsköpun og skapar annað sjónarhorn á verkefni. Ef vel tekst til getur samstarf vísinda og lista á sýningum fyrir almenning einnig aukið skilning fólks á rannsóknarniðurstöðum og þýðingu og mikilvægi niðurstaðnanna fyrir það.

Fulltrúar ICELINK og Sermit | Jöklar bjóða upp á fjölbreytta viðburði á vísindaviku Grænlands og hægt er að kynna sér dagskrána á vef vikunnar.

Icelink

Vísindamenn við HÍ og Veðurstofu Íslands eru meðal þeirra sem koma að hinu viðamikla ICELINK-verkefni. Teiknikngar/Rán Flygenring

Nánar um samstarfsaðilana

Sermit | Jöklar er listrænt samstarfsverkefni íslenskra og grænlenskra listamanna, þeirra Alberte Parnuuna hljóðvinnslu- og myndatökumanns, Antoníu Bergþórsdóttur leirkerasmiðs, Írisar Maríu Leifsdóttur myndlistarkonu og Vikram Pradhan vídeógerðarmanns. Þau hafa nýverið sent frá sér stuttmyndina Bye Bye Glacier þar sem fjallað er um hopandi jökla á Íslandi og Grænlandi. Þar birtast loftbólur á hreyfingu og jarðefni sem hafa legið og umbreyst í jöklinum í gegnum aldanna rás. Myndin geymir smásjárskot og hljóðupptökur af jökulís af Breiðamerkurjökli, Hoffelssjökli, Svínafellsjökli og Narsap Sermia.

Alþjóðlegur listi yfir hverfandi jökla (e. Global Glacier Casualty List - GGCL) er kvikur vettvangur þar sem finna má upplýsingar um jökla sem nýlega hafa horfið og munu brátt hverfa en þar er einnig undirstrikað hvaða áhrif hvarf þessara jökla hefur á samfélög. Þúsundir jökla hafa nú þegar horfið vegna loftslagsbreytinga af mannavöldum sem rekja má beint til notkunar jarðefnaeldsneytis. Miðað við núverandi hraða hlýnunar eru allir jöklar í útrýmingarhættu.

GGCL-verkefnið hófst árið 2024 í samstarfi Rice-háskólans í Bandaríkjunum, Háskóla Íslands, Jöklarannsóknafélags Íslands, Alþjóðlegu jöklaeftirlitsþjónustunnar (WGMS) og UNESCO. Verkefnið styður eindregið tilnefningu Sameinuðu þjóðanna á árinu 2025 sem alþjóðlegs árs jökla á hverfanda hveli og alþjóðlega jökladaginn sem verður framvegis haldinn árlega 21. mars.

Loftslagsrannsóknaverkefnið ICELINK hlaut 7,5 milljóna evra styrk úr Horizon Europe áætlun ESB en að því koma vísindamenn frá háskólum, veðurstofum og rannsóknarstofnunum frá Íslandi, Danmörku, Grænlandi, Austurríki, Belgíu, Þýskalandi og Spáni, þar á meðal HÍ og Veðurstofu Íslands. Vísindamennirnir munu samþætta niðurstöður háþróaðra loftslags- og ísflæðilíkana við afkomumælingar og gervihnattagögn til að auka skilning okkar á áhrifum loftslagsbreytinga á jökla á Norður-Atlantshafssvæðinu. Í verkefninu er mikil áhersa lögð á samstarf við hagsmunaaðila og miðlun vísindaafurða verkefnisins til sem flestra áheyranda til að styðja við aðlögunaraðgerðir, draga úr áhættu og auka seiglu.

ASIAQ Greenland Survey er ríkisstofnun sem sérhæfir sig í landmælingum og umhverfisrannsóknum á Grænlandi. ASIAQ starfar á vegum grænlensku ríkisstjórnarinnar (Naalakkersuisut) og safnar, geymir, greinir og miðlar nauðsynlegum gögnum sem nýtast til að skipuleggja sjálfbæra nýtingu á náttúruauðlindum landsins.

maður á jökli