Leita að fólki til að prófa nýjan tónlistarspunaleik

Fyrirtækið Etýða, sem grundvallast á samstarfi fyrrverandi tölvunarfræðinema og prófessors í tölvunarfræði við HÍ, hefur hafið prófanir á sínum fyrsta leik og leitar nú að fólki sem hefur einhverja reynslu af hljóðfæraleik til að taka þátt í prófununum. Um er að ræða spunaleik þar sem 2-8 hljóðfæraleikarar geta keppt hver gegn öðrum og um leið búið til tónlist.
Leikurinn ber sama nafn og fyrirtækið, Etude, og er eins konar tónlistarrafíþróttaleikur þar sem nótur leika lykilhlutverk. Í hvert skipti sem stutt er á nótu eða henni sleppt breytist möguleg framvinda spilara (e. Band Consensus) en sérhannaður algóritmi ákvarðar hvaða rótarnótur og skalar eru leyfilegir hverju sinni. Ef leikmaður styður á nótu sem er utan þeirra heyra aðrir leikmenn ekki nótuna en viðkomandi fær villu. Leikurinn snýst því um samspil og hæfni í að ráða í framvindu annarra.
Veitt eru Elo-stig í leiknum, svipað og í skák, og skor hvers og eins spilara er notað til að raða leikmönnum saman í leiki (e. matchmaking). Fjöldi nótna hefur einnig áhrif á skor leikmanna en þeir þurfa að vera með framlag í grófu hlutfalli við aðra, annars dregst skor þeirra niður.
Í leiknum er boðið upp á eins, þriggja og fimm mínútna viðureignir ásamt „Free Mode“ þar sem leikmenn geta spilað saman án tímamarka. Einnig er hægt að búa til einkaþjóna (e. servers) til að spila í afmörkuðum hópum, t.d. vinahópum.
Að Etýðu standa Eiður Á. Möller, tónlistarmaður og fyrrverandi tölvunarfræðinemi við HÍ, í samstarfi við Jóhann Pétur Malmquist, prófessor emeritus í tölvunarfræði við Háskóla Íslands. Jóhann og Eiður kynntust í námskeiði Háskólans, Frá hugmynd að veruleika, sem Jóhann kennir og stofnuðu í framhaldi af því Etýðu.

Etýða leitar nú að fólki til að prófa leikinn en skilyrði er að þátttakendur eigi Mac OS tölvu og hljómborð sem hægt er að tengja við tölvuna (Útgáfa af leiknum fyrir Windows-tölvur er í þróun). Öllum er velkomið að taka þátt, skemmra og lengra komnum í hljóðfæraleik. Þar sem þetta er fjölspilunarleikur og notendur ekki margir enn sem komið er hvetja forsvarsmenn Etýðu þau sem vilja prófa að finna félaga til að spila með.
Hægt er að skrá sig til prófana á etude.is
Etýða er einnig með svokallaðan discord-þjón þar sem hægt er að veita endurgjöf á leikinn og ræða við framleiðendur.
Að Etýðu standa Eiður Á. Möller, tónlistarmaður og fyrrverandi tölvunarfræðinemi við HÍ, í samstarfi við Jóhann Pétur Malmquist, prófessor emeritus í tölvunarfræði við Háskóla Íslands. Jóhann og Eiður kynntust í námskeiði Háskólans, Frá hugmynd að veruleika, sem Jóhann kennir og stofnuðu í framhaldi af því Etýðu.
Nánari upplýsingar um leikinn er einnig hægt að finna á etude.is eða með því að senda tölvupóst á etude@etude.is