„Oj, þetta er svo ógeðslegt á bragðið!!!“
Flestir foreldrar kannast við svona upphrópanir hjá börnum sínum við matarborðið og eiga oft í mesta basli með að halda að þeim mat sem er hollur og næringarríkur. Matvendni er því ekkert nýtt fyrirbæri í daglegum veruleika en hins vegar frekar nýtt rannsóknarefni sem kallar á þverfræðilega nálgun á sviði næringarfræði, sálfræði og kennslufræði auk þess sem upplýsingatækni kemur við sögu.
Með því að ráðast til atlögu gegn matvendni er líklega hægt að tryggja börnum miklu meiri hollustu en sýnt hefur verið fram á með ýmsum rannsóknum að hollusta fæðis á fyrstu árum ævinnar getur skipt miklu um heilbrigði hér og nú en líka löngu síðar í lífinu.
Sigrún Þorsteinsdóttir, doktorsnemi við Menntavísindasvið Háskóla Íslands, hefur helgað rannsóknir sínar því að þjálfa bragðlauka barna og foreldra. Rannsóknin er tær nýsköpun í formi sérhæfðs námskeiðs fyrir börn og foreldra sem felur í sér endurtekna kynningu á alls kyns matvælum á tiltölulega skömmum tíma. Sigrún segir að aðaláherslan í bragðlaukaþjálfuninni sé á fæðuval, matvendni og líðan, bæði hjá börnum og foreldrum. Leikur og gleði séu leiðarljósið og engum sé þröngvað til að smakka eitt né neitt. Aðalatriðið sé að höfða til forvitni og skemmtunar. Leiðbeinandi Sigrúnar í doktorsverkefninu er Anna Sigríður Ólafsdóttir prófessor í næringarfræði á Menntavísindasviði HÍ, sem á auk þess hugmyndina að verkefninu.
„Flest börn og foreldrar geta nýtt sér aðferðir okkar en mesta ákorunin er gjarnan að fá börnin til að smakka bragðmiklar fæðutegundir,“ segir Sigrún. „Námskeiðið sjálft er einföld og skemmtileg leið til að draga úr matvendni þar sem við leggjum áherslu á ánægju og á fjölbreytni í fæðuvali. Við leggjum sér í lagi kraft í að auka neyslu ávaxta og grænmetis sem eru þær fæðutegundir sem helst skortir í mataræði barna almennt.“
Sigrún er með með meistaragráðu í klínískri barnasálfræði frá HÍ og svo aðra meistaragráðu í heilsusálfræði frá University of Westminster. Bragðlaukaþjálfunin tengist þannig í tvennum skilningi hugðarefnum Sigrúnar, heilsusálfræði og matarvenjum því hún hefur skrifað uppskriftabækur auk þess að miðla hollum uppskriftum á samfélagsmiðlum og netinu þar sem áherslan er á vistvænt hráefni.
Nýsköpun - Þróuðu app til að bæta matarvenjur
Í nýrri stefnu Háskóla Íslands, HÍ26, er mikið lagt upp úr notendamiðaðri þjónustu og stafrænni umbyltingu hennar. Fullyrða má að vísindakonurnar tvær hafi einmitt farið þessa nýju leið í rannsókninni að hluta til. Þær hagnýttu sér nefnilega upplýsingatæknina í þágu verkefnisins með því að þróa sérstakt app fyrir snjallsíma til að létta þátttakendum matarskráningar. Þarna er á ferðinni mjög áhugarverð nýsköpun.
„Appið gerir notendum kleift að skrá fæðuvenjur sínar myndrænt. Verandi eins og við Anna Sigríður, stöðugt að tala um mat, börn og líðan þeirra, þá eru bara hugmyndir sem þessu tengjast að fæðast á færibandi,“ segir Sigrún og brosir.
Þegar horft er á verkefnið er margt sem vekur áhuga, ekki síst nýsköpunarhlutinn en líka nýjustu niðurstöðurnar sem eru einkar jákvæðar og boða að skynsamlegt sé að þróa þessar aðferðir áfram til að bæta matarvenjur barna.
„Í stuttu máli virkaði námskeiðið vel, matvendni minnkaði hjá börnum eftir þátttöku og áhrifin héldust til sex mánaða sem er ekki sjálfgefið. Vísbendingar eru einnig um að ánægja af því að borða hafi aukist. Börnin samþykktu einnig fleiri tegundir af matvælum eftir þátttöku, t.d. margs konar grænmeti,“ segir Sigrún en nú þegar hafa verið birtar þrjá ritrýndar vísindagreinar með niðurstöðum úr rannsókninni.