skurðaðgerð

Kransæðahjáveituaðgerðum hefur fækkað umtalsvert á síðustu tveimur áratugum og eru nú helmingi færri en í Svíþjóð. Þá er langtímaárangur af slíkum aðgerðum afar góður hér á landi, hvort sem horft er til aðgerða sem gerðar eru með hjarta- og lungnavél eða þar sem hjartað er látið slá í aðgerðinni. Þetta sýna niðurstöður rannsóknar sem vísindamenn við Háskóla Íslands og Læknadeild Háskóla Íslands birtu í nýjasta tölublaði Læknablaðsins.

Kransæðahjáveituaðgerð hefur löngum verið algengasta hjartaskurðaðgerðin á Íslandi, líkt og annars staðar á Vesturlöndum. Helsta ábendingin er útbreiddur kransæðasjúkdómur eða þrenging vegna kalks í svokölluðum vinstri höfuðstofni hjartans. Hefðbundið er að framkvæmda hjáveituaðgerð með aðstoð hjarta- og lungnavélar, þar sem hjartað er stöðvað með kalíumríkri lausn og slag- og bláæðar saumaðar handan stíflanna í kransæðum og blóði þannig veitt fram hjá þrengingunum. Kransæðahjáveitu má einnig framkvæma án hjarta- og lugnavélar og þá aðgerðin gerð á sláandi hjarta. Það er tæknilega meira krefjandi og var stór hluti hjáveituaðgerða á Íslandi gerður með þessari tækni upp úr síðustu aldamótum en hefur síðan fækkað.

Árangur þessar aðgerðtegunda hefur verið borinn saman í fjölda rannsókna en flestar þeirra hafa aðeins beinst að skammtímaárangri. Í þessari rannsókn var einnig kannaður langtímaárangur þeirra og notast við miðlæga gagnagrunna sem m.a. náðu til endurinnlagna á öllum sjúkrahúsum landsins.

Rannsóknin tók til 2.337 kransæðahjáveituaðgerða sem framkvæmdar voru á Landspítala frá 2001 til 2021. Borinn var saman árangur 1940 sjúklinga sem gengust undir hefðbundna hjáveituaðgerð og þeirra 356 sem fóru í sambærilega aðgerð á sláandi hjarta. Til að skoða nánar hvort aðgerðartegund hefði áhrif á lifun hópanna var beitt svokallaðri pörun með líkindaskori (e. propensity score matching) og þannig búnir til sambærilega hópar.

Í ljós kom að bæði skammtíma- og langtímaárangur var sambærilegur hjá hópunum tveimur og voru þrír af hverjum fjórum sjúklingum á lífi 10 árum eftir aðgerð, sem þykir ágætur árangur, jafnvel í alþjóðlegum samanburði. Þegar litið var til sértækra fylgikvilla eins og kransæðastíflu og þörf á kransæðavíkkun voru hóparnir sömuleiðis sambærilegir og sérlega ánægjulegt að innan við 1% sjúklinga í báðum hópum þurfti á endurtekinni hjáveituaðgerð að halda.

Athyglisvert var að kransæðahjáveituaðgerðum fækkaði töluvert á rannsóknartímabilinu, eða úr 42 í 13 aðgerðir á hverja 100.000 íbúa á ári, eða um tvo þriðju, á þeim 20 árum sem rannsóknin tók til. Til samanburðar voru gerðar 21 aðgerðir á hverja 100.000 íbúa á ári í Svíþjóð árið 2021, sem eru 60% fleiri aðgerðir en á Íslandi. Mest fækkun varð í COVID-19-faraldrinum sem rekja má til skorts á gjörgæslurýmum en við það bætast við framfarir í kransæðavíkkunum. Hefur fjöldi hjáveituaðgerða á Landspítala ekki náð fyrri hæðum síðan og það þrátt fyrir góðan og sífellt batnandi árangur, eins og þessi rannsókn staðfestir.

Fyrsti höfundur greinarinnar er Kristjana Lind Ólafsdóttir, læknanemi á 5. ári við Háskóla Íslands, og vann hún rannsóknina samhliða læknanámi undir handleiðslu Tómasar Guðbjartssonar, yfirlæknis og prófessors á hjarta- og lungnaskurðdeild Landspítala.

Tómas og Kristjana lind
Tómas Guðbjartsson og Kristjana Lind Ólafsdóttir.

Deila

Efnisorð
Var efnið hjálplegt?

Hvers vegna var efnið ekki hjálplegt?

Takmarkað við 250 stafabil