Ný tækni sem nýtir köngulóarsilki í stað nælons, félagslegir töfrar, stóri söngvabankinn, stafræn tilraunahugvísindi, lífið í sjónum, rannsóknir á fylgjunni, framlag Íslands til geimferða og hin geysvinsæla Vísindasmiðja er meðal þessa sem gestir munu finna á sýningarsvæði Háskóla Íslands á Vísindavöku laugardaginn 26. september milli kl. 12 og 17 í Laugardalshöll.
Vísindavaka er haldin ár hvert og hefur fyrir löngu unnið sér sess sem stærsti viðburður ársins á sviði vísindamiðlunar. Þar kynnir vísindafólk frá bæði háskólum, stofnunum og fyrirtækjum á Íslandi störf sín og rannsóknir og býður gestum að prófa tæki og tól eða spreyta sig á þrautum sem varpa óvenjulegu og skemmtilegu ljósi á vísindin. Vísindavaka er haldin í helstu borgum Evrópu undir heitinu Researchers' Night og hún er ætluð forvitnu fólki á öllum aldri.
Háskóli Íslands og Háskóli íslands á Hólum verða í fyrsta sinn með sameiginlegt sýningarsvæði á Vísindavöku sem spannar í kringum 40 kynningarstöðvar og tengjast ótal fræðasviðum innan skólanna.
Skyndihjálp, skurðlækningar og sebrafiskar
Gestir geta þannig fræðst um um prótínmagn í mismunandi fæðutegundum og kynnt sér hvernig fólk tekur ákvarðanir, kynnst skapandi vinnulagi félagsráðgjafa með börnum og rýnt í vetrabrautir, hulduorku og hulduefni. Þá gefst færi á að leika listir sínar með fótbolta og kynna sér langtímarannsókn á ungum knattspyrnustúlkum, spreyta sig á endurlífgun, skyndihjálp og heimlich-aðferðinni, prófa að sauma sár með hjálp nemenda í skurðlæknisfræði og fræðast um hvernig sebrafiskar eru notaðir til að rannsaka sjúkdóma í fólki.
Tungumál og hulduheimur dýranna
Þá verður einnig hægt að spreyta sig á pólsku á sýningarsvæði HÍ, kynna sér japanskt mál og menningu, prófa að skrifa kínversk tákn og smakka tunglkökur. Enn fremur gefst gestum kostur á að skyggnast inn í hulduheim maura, þreifa á krabbadýrum, krossfiskum og sjávarhryggleysingjum, skoða alvöru býflugnabú og kíkja inn í frumur ávaxtaflugunnar.
Læknar Bangsaspítalans verða á staðnum að hjúkra veikum og slösuðum böngsum og dúkkum og þá verður hægt að kynna sér hvernig foreldrar og starfsfólk leikskóla geta skimað fyrir frávikum í tal- og málþroska barna. Gestum á öllum aldri er einnig boðið í spjall um daginn og veginn fyrir framan myndavél á vegum blaðamennskunnar í HÍ og enn fremur verður hægt að setja sig í spor þjóðfræðinga og spyrja fjölskyldumeðlimi hvernig þeir léku sér sem börn.