Kennslumiðstöð Háskóla Íslands fagnaði merkum áfanga – 25 ára afmæli fimmtudaginn 17. september og af því tilefni var efnt til málþings í Hátíðarsal Aðalbyggingar undir yfirskriftinni „25 ár í þágu kennslu og náms“.
Vel var mætt til hátíðarinnar og meðal gesta voru kennarar, stjórnendur, samstarfsfólk, velunnarar og vinir Kennslumiðstöðvar. Gestir komu af öllum fræðasviðum Háskóla Íslands auk annarra háskóla og stofnana. Málþingsstjóri var Margrét Sigrún Sigurðardóttir, prófessor og sviðsstjóri Kennslusviðs.
Silja Bára R. Ómarsdóttir, rektor Háskóla Íslands, setti málþingið og ávarpaði gesti. Að því loknu tók við gestafyrirlesari dagsins, Åse Nygren, kennsluþróunarstjóri við Blekinge Institute of Technology í Karlskrona og Malmö-háskóla í Svíþjóð.
Í erindi sínu, „Why, how and to what result? Contextualizing Centers for Teaching and Learning in Higher Education“, fjallaði Åse um hlutverk kennslumiðstöðva í háskólum, stöðu þeirra innan stofnana og þann árangur sem starf þeirra getur skilað. Hún byggði meðal annars á nýlegri rannsókn á þróun kennslumiðstöðva í Svíþjóð. Þar kemur skýrt fram að hlutverk þeirra hefur víkkað verulega á undanförnum árum, verkefnin orðið fjölbreyttari og samstarf við ólíka aðila innan og utan háskóla aukist.
Að erindi Åse loknu var sýnt myndband með afmæliskveðjum til Kennslumiðstöðvar frá samstarfsfólki og vinum. Myndbandið má nálgast hér að neðan.