spói

Íslenski spóinn flýgur hraðar á milli varp- og vetrarstöðva sinna en nokkur önnur undirtegund spóa. Hann er jafnframt sú undirtegund sem stendur frammi fyrir mestu ógninni af mannavöldum sem sækir á varplendur hans. Þetta eru meðal niðurstaðna umfangsmikillar, alþjóðlegrar rannsóknar sem Camilo Carneiro, nýdoktor við Rannsóknasetur Háskóla Íslands á Suðurlandi, leiddi en þar voru borin saman ferðamynstur undirtegunda spóa og þær ógnir sem þær standa frammi fyrir.

Spóinn skiptist í tvær tegundir og sjö undirtegundir sem lifa og fara um allar heimsálfur nema Suðurskautslandið. Allar undirtegundirnar ferðast langar leiðir milli varp- og vetrarstöðvar og þær verpa aðallega á lág-arktískum svæðum Norður-Ameríku, Evrópu og Asíu en dvelja yfir veturinn nær miðbaug.

Vísindamenn hafa um nokkurt skeið notað GPS-senda til að fylgjast með ferðum ýmissa fuglategunda milli varp- og vetrarstöðva. Meðal þeirra sem nýta sér þessa tækni eru rannsakendur við Rannsóknasetur Háskóla Íslands á Suðurlandi sem hafa rannsakað farfugla af ýmsum tegundum, þar á meðal spóa.

Rannsóknirnar hafa staðið yfir í meira en áratug og því eru varpsvæði íslenska spóans meðal þeirra best rannsökuðu af öllum undirtegundum spóa. Tómas Grétar Gunnarsson, rannsóknaprófessor og forstöðumaður setursins, og José Alves, gestafræðimaður við setrið, hafa leitt stóran hluta þessara rannsókna og eru jafnframt meðal meðhöfunda nýju rannsóknarinnar.

Rannsóknir við setrið hafa meðal annars sýnt að íslenskir spóar fljúga nær undantekningarlaust suður á vetrarstöðvar sínar í einni samfelldri ferð. Á leiðinni til baka til Íslands gera þeir annað hvort hið sama eða, það sem er algengara, stoppa í eina til tvær vikur í Bretlandi eða á Írlandi, áður en þeir ljúka ferðinni

„Rannsóknir okkar hafa einnig sýnt að brottfarardagur frá vetrarstöðvum er mikilvægur forspárþáttur fyrir farhegðun spóa. Þeir fuglar sem leggja seinna af stað eru líklegri til að fljúga beint til Íslands, líkt og þeir séu að hraða sér til að vinna upp tapaðan tíma,“ segir Camilo, sem lauk doktorsnámi sínu undir handleiðslu José og Tómasar.

Camilo sleppir spó
Camilo sleppir spóa eftir merkingu. MYND/Triin Kaasiku

Gögn fengin hvaðanæva að úr heiminum

Í doktorsnámi sínu segist Camilo sífellt hafa fengið meiri áhuga á að skoða einstök tímabil ársins sem hluta af stærri heild, þ.e. árlegum ferðalögum fuglanna.

„Mér finnst þetta afar mikilvægt vegna þess að það geta verið málamiðlanir milli atburða sem verka á mismunandi árstíðum og sem endurtaka sig ár hvert, sérstaklega hjá tegundum sem fylgja mjög ströngu tímaskipulagi, eins og spóanum. Eftir því sem fleiri rannsóknir á spóum á mismunandi farleiðum voru birtar fór ég að velta fyrir mér hvort það væri ekki gagnlegt að sameina allar þessar niðurstöður í eina heildarmynd. Sú hugmynd mallaði í huga mínum í nokkurn tíma,“ segir Camilo um upphaf rannsóknarinnar.

Camilo nýtti sér efnvið úr Global Wader, verkefni sem hefur það markmið að byggja upp heildstæðan gagnagrunn yfir ferðalög merktra vaðfugla, sem grunn til að safna saman sem mestum gögnum um ferðir spóa. „Verkefnið sem við kölluðum Global Whimbrel hófst með nokkuð sveigjanleg markmið sem voru rædd og þróuð áfram með samstarfsfólki víðs vegar að úr heiminum sem bættist smám saman í hópinn,“ útskýrir hann.

Rannsóknin byggist á gögnum frá rúmlega 50 vísindamönnum um allan heim og inniheldur stærstan hluta þeirra upplýsinga um ferðir spóa sem safnað hefur verið til þessa. Markmiðið var að greina hvar skorti gögn um ferðir fuglanna, bera saman ferðlög undirtegunda yfir árið og meta þær ógnir sem þær standa frammi fyrir, allt í því augnamiði að varpa ljósi á hvar brýnust þörf væri fyrir frekari rannsóknir.

Með því að nýta meira en 2,6 milljónir staðsetninga frá 251 merktum spóa reiknaði rannsóknahópurinn meðal annars farvegalengdir mismunandi undirtegunda, farhraða, hraða yfir landi, heildarviðkomutíma á milli varp- og vetrarstöðva og fjölda viðkomustaða. Jafnframt voru metnir tólf flokkar ógna sem spóar standa frammi fyrir og þeim skipt frekar niður í undirflokka.

spói
Spói á vappi á Suðurlandi. MYND/Triin Kaasiku

Ólík árleg ferðamynstur

„Þegar á heildina er litið sker ferðamynstur íslenska spóans sig frá mynstri annarra undirtegunda. Hann fer tiltölulega stutta leiðir milli varp- og vetrarstöðva, flýgur hraðar á haustin en á vorin og dvelur bæði lengur á varpstöðvum og vetrarstöðvum en nokkur önnur undirtegund,“ segir Camilo.

Rannsóknin sýndi jafnframt almennt fljúga spóar hraðar á vorin, sem endurspeglar mögulega meiri tímapressu að komast á varpstöðvar sínar en til vetrarstöðvanna. Íslenski spóinn er hins vegar undantekning og flýgur hraðar á haustin. Þá dvelur hann einnig marktækt skemur á viðkomustöðum en meðaltal undirtegundanna. Þetta kann að tengjast tiltölulega stuttri farleið hans, sem er um 6.000 kílómetrar, sem íslenskir spóar fljúga gjarnan án viðkomu.

„Þeir fara þessa vegalengd á um það bil fimm sólarhringum. Ef þú ímyndar þér að á meðan þú sinnir öllum þínum venjulegu verkefnum frá mánudegi til föstudags sé spói stöðugt á flugi milli Íslands og Vestur-Afríku, þá er það ansi áhrifamikið.“

spóaegg
Spóaegg í móa á Suðurlandi, í baksýn sést fjallið Þríhyrningur. MYND/Camilo Carneiro

Sumarbústaðabyggð, skógrækt og lúpína hafa áhrif á varplendi spóans

Íslenski spóinn er einnig frábrugðinn öðrum undirtegundum þegar horft er til þeirra ógna sem hann stendur frammi fyrir.

„Þetta á sérstaklega við varpstöðvarnar, en þar verður íslenski spóinn fyrir mestum áhrifum af verkum manna, sem með gjörðum sínum minnka það land, sem stendur fuglunum til boða til varps. Til dæmis hefur orðið greinileg fjölgun sumarbústaða sem oft eru byggðir á varplendi spóa og minnka þannig aðgengi þeirra að hentugu búsvæði. Einnig er skógrækt að aukast sem ekki aðeins dregur úr hentugu varplendi heldur skapar einnig svokölluð jaðaráhrif þar sem spóar forðast svæði í nágrenni skógræktar,“ segir Camilo og vísar þar meðal annars til rannsókna Aldísar Pálsdóttur og samstarfsfólks hennar við Rannsóknasetrur HÍ á Suðurlandi.

Útbreiðsla alaskalúpínu á Íslandi var einnig samkvæmt rannsókn Camilo og félaga talin hafa miðlungsáhrif á varp íslenska spóans þar sem hún dregur úr aðgengi að mikilvægu búsvæði, sem eru hálfgrónar áreyrar.

Þegar litið var til allra undirtegunda kom í ljós að verulegur skortur er á gögnum um ferðalög spóa í Afríku, Miðausturlöndum og Indlandsskaga og varpsvæðum í norðanverðu og miðju Rússlandi.

Höfundar rannsóknarinnar leggja áherslu á að núverandi þekking á vistfræði spóa sé enn brotakennd, „þar sem mögulega sé mikil og óþekkt þörf á að vernda svæði og undirtegundir, sem lítið hafa verið rannsökuð. Jafnframt bendum við á sameiginlegar ógnir sem líklegt er að muni aukast samhliða áframhaldandi umhverfisbreytingum.“

Aðspurður um hverjar hann telji áhugaverðustu niðurstöðurnar í rannsókninni segir Camilo að sér þyki sérstaklega heillandi hversu mikill munur sé á tímasetningu og lengd mismunandi skeiða ársins hjá spóanum, þ.e. varptíma, fartíma og vetrardvöl. „Þetta bendir til þess að mismunandi undirtegundir búi við ólíkar takmarkanir sem leiða til ólíkrar nýtingar á tíma og rúmi. Það flækir óhjákvæmilega verndunarstarf því ólíklegt er að ein lausn virki alls staðar. Taka þarf tillit til sérstakra aðstæðna hverrar undirtegundar ef verndaraðgerðir eiga að bera árangur,“ segir Camilo.

Spurður um vísindalegt og samfélagslegt gildi rannsóknarinnar bendir hann á að hún hjálpi til við að greina hvar framtíðarrannsóknir geti haft mest áhrif.

„Fyrir samfélagið í heild tel ég mesta gildið felast í mati okkar á þeim ógnum sem spóar standa frammi fyrir allan ársins hring og þar með hvert við sem samfélag þurfum að beina kröftum okkar ef við viljum vernda þá.“

Rannsóknin, A Global Perspective on the Annual Cycles of Whimbrels, er aðgengileg á vef tímaritsins Ibis:

Deila

Efnisorð
Var efnið hjálplegt?

Hvers vegna var efnið ekki hjálplegt?

Takmarkað við 250 stafabil