Aðstandendur Icelandic Online

Nú eru 25 ár liðin frá því að hafist var handa við að vinna vefkennsluefnið Icelandic Online og því var fagnað með dagskrá í Eddu, húsi íslenskunnar, þann 21. september. Verkefnið hófst á sínum tíma í samstarfi íslenskuskorar Háskóla Íslands, Hugvísindastofnunar, Stofnunar Vigdísar Finnbogadóttur og Stofnunar Sigurðar Nordals. Rannsóknarmiðstöð Íslands, Kennslumálasjóður Háskólans og menntamálaráðuneytið styrktu gerð kennsluefnisins fyrir nema sem áttu ekki íslensku að móðurmáli. Einnig var hafið samstarf um kennsluefnisgerðina við Wisconsinháskóla í Madison og nokkra háskóla í Evrópu þar sem íslenska er kennd. Í kjölfarið veitti Lingua-áætlun Evrópusambandsins verkefninu stóran fjárstyrk. Verkefnisstjórn var skipuð undir forsæti Birnu Arnbjörnsdóttur prófessors sem var frumkvöðull að Icelandic Online. Úlfar Bragason forstöðumaður Stofnunar Sigurðar Nordals sat í verkefnisstjórninni með henni, Partick Thomas mál– og tölvunarfræðingur var tæknilegur ráðgjafi verkefnisins frá upphafi en Kolbrúnu Friðriksdóttur dósent vann mest að kennsluefnisgerðinni sjálfri með Birnu.

Fyrri hluti vefnámskeiðsins Icelandic Online 1 var tilbúinn í ágúst 2004 og opnaði Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, þáverandi menntamálaráðherra, vefnámskeiðið til notkunar. Seinni hluti þess og Icelandic Online 2 voru tilbúin 2005. Þessi námskeið eru ætluð byrjendum á háskólastigi. Síðan hefur verið haldið áfram námsefnisgerðinni að mestu fyrir styrki frá Nordplus-áætlun Norrænu ráðherranefndarinnar.

Icelandic Online eru sjálfstýrð vefnámskeið í íslensku sem öðru máli, opin öllum endurgjaldslaust. Vefnámskeiðin eru á mismundandi færnistigum, bæði ætluð byrjendum og lengra komnum, allt frá A1 til C1 á CEFR skala. Þeim er ætlað að þjóna stúdentum hérlendis og erlendis, fræðimönnum og öðru áhugafólki um íslenskt mál og menningu. Aðfaranámskeiðið Bjargir (survival course) er ætlað þeim, sem óvanir eru, á allra fyrstu stigum íslenskunáms og búa og starfa á Íslandi.

Námskeið Icelandic Online byggjast á myndrænu og gagnvirku námsefni þar sem hvert námskeið samsvarar 45 – 90 klukkustunda námi. Námsefnið þjálfar nemendur í málfræði íslensku, orðaforða, hlustun og notkun málsins, m.a. með gagnvirkum æfingum. Orðaforði og málfræðigrunnur eru löguð að þörfum byrjenda. Hjálparmálið er enska og námskeiðin er unnt að nálgast í tölvu og á snjalltækjum.

Námsefnið er einnig notað í fjarkennslu á vegum Tungumálamiðstöðvar Háskóla Íslands og sem hluti af háskólakennslu og á tungumálanámskeiðum.

Icelandic Online fyrir börn

Arnbjörnsdóttir prófessor og Halldóra Jóhanna Þorláksdóttir, ritstjóri Icelandic Online, hafa fengið styrki til að þróa námsefni fyrir börn í tengslum við Icelandic Online – Börn. Þegar eru sjö námskeið á vefnum í gjaldfrjálsum aðgangi en hér er áherslan lögð á að þjálfa orðaforða, málbeitingu og máltilfinningu með æfingum, leikjum og þrautum. Markhópurinn er jafnt börn sem eiga erlent mál að móðurmáli og íslensk börn sem alist hafa upp í öðru málumhverfi og þurfa á íslenskukennslu að halda. Miðað er við aldurshópinn 5-7 ára. Jafnframt hafa verið gefnar út verkefnabækur fyrir tvö fyrstu námskeiðin. Verkefnið hefur m.a. hlotið styrki frá Barnavinafélaginu Sumargjöf, Styrktarsjóði Áslaugar Hafliðadóttur, Þróunarsjóði innflytjenda, Þróunarsjóði námsgagna og menntamálaráðuneytinu.

Efnisorð
Var efnið hjálplegt?

Hvers vegna var efnið ekki hjálplegt?

Takmarkað við 250 stafabil