Rannsóknin VAL, sem Háskóli Íslands leiðir í samstarfi við vísindafólk frá Háskólanum í Maastricht, Max Planck-stofnuninni fyrir atferlishagfræði, Háskólanum í Varsjá og Harvard-háskóla, hefur verið opnuð á val.hi.is. Rannsóknin fjallar um ákvarðanir í daglegu lífi og er opin fólki á aldrinum 18–66 ára sem býr eða dvelur að jafnaði á höfuðborgarsvæðinu. Ólíkt hefðbundnum spurningakönnunum hafa ákvarðanir þátttakenda raunverulegar afleiðingar: sumir fá peningagreiðslu og sumum býðst að kaupa tímabilskort á lægra verði en almennt gildir.
„Margar rannsóknir á ákvörðunum byggja á því sem fólk segist myndu gera. Í VAL velur fólk í alvöru og það gerir gögnin verðmæt,“ segir Tinna Laufey Ásgeirsdóttir, prófessor í hagfræði við Háskóla Íslands og aðalrannsakandi VAL. „Við viljum að í rannsókninni heyrist frá fólki með ólíkan bakgrunn og reynslu.“
Enginn veit hve margir komast að
Í VAL eru raunverulegir peningar í húfi og fjármagnið er takmarkað. Fjöldi þátttakenda ræðst að miklu leyti af því hve lengi fjármagn til greiðslna endist, en hve marga það dugar fyrir veit enginn fyrir fram. Það ræðst meðal annars af tilviljun. „Þetta er óvenjuleg staða fyrir rannsakendur. Yfirleitt er ákveðið fyrir fram hve margir taka þátt. Hér vitum við það ekki fyrir víst, og það segir sína sögu um að peningarnir í VAL eru raunverulegir,“ segir Tinna.
Tímabilskortin sem kunna að bjóðast eru í Strætó, sund- og menningarkort Reykjavíkurborgar og líkamsræktarkort hjá Kötlu Fitness. Rannsóknin er styrkt af Rannsóknasjóði og unnin með stuðningi Reykjavíkurborgar, Almenningssamgangna höfuðborgarsvæðisins (Strætó) og Kötlu Fitness. Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands annast gagnaöflun.
Tilgátur kynntar þegar gagnaöflun lýkur
Rannsakendur greina ekki nánar frá tilgátum rannsóknarinnar fyrr en gagnaöflun lýkur. „Ef fólk veit fyrir fram hverju við leitum að getur það haft áhrif á valið. Það er hefðbundið verklag í atferlisrannsóknum,“ segir Tinna. „Þátttakendur fá hins vegar allar upplýsingar um það sem snýr að þeim sjálfum, um greiðslur, meðferð gagna og réttindi sín áður en þeir samþykkja þátttöku. Ekkert sem þeim er sagt er rangt.“