Adam Fishwick

Fulltrúar frá Geimvísindastofnun Evrópu (ESA), aðgerðateymi Sameinuðu þjóðanna um starfsemi á tunglinu (UN Action Team on Lunar Activities), Secure World Foundation og fræðafólk víða að úr heiminum, þar á meðal frá Háskóla Íslands, koma saman hér á landi um helgina til að leggja grunn að alþjóðlegri vísindanefnd sem mun veita stefnumótendum ráðgjöf um sjálfbæra nýtingu geimsins.

„Þetta er mikilvægt verkefni þar sem brugðist er við skorti á sameiginlegum skilningi og stefnumótun um sjálfbæra og réttláta nýtingu geimsins og aðgengi að honum,“ segir Adam Fishwick, aðjunkt við Stjórnmálafræðideild Háskóla Íslands, sem tekur þátt í COST-samstarfsnetinu Futures-oriented Governance of Outer Space (FOGOS).

„Samstarfsnetinu stýra Xiao-Yap Shan við Háskólann í Utrecht og Florian Rabitz við Háskólann í Vilníus. Ég sit í stjórn þess sem fulltrúi Íslands og mun jafnframt vera gestgjafi vinnustofunnar á vegum netsins. Verkefnið byggist einkum á rannsóknaverkefni Shan, sem nýtur styrks frá Evrópska rannsóknarráðinu (ERC), um framtíð stjórnunar í geimnum. Jafnframt er byggt á víðtæku samstarfi við önnur rannsóknarnet sem eiga fulltrúa á vinnustofunni,“ segir Adam.

Þverfagleg nálgun á sjálfbærni jarðar og geims

Aðkoma Adams að samstarfinu byggist á rannsóknum hans á stjórnmálum geimsins á Norðurlöndum og norðurslóðum, þar á meðal rannsóknum með áherslu á Ísland og hið norræna geimhagkerfi innan rannsóknarverkefnisins Nordspace, sem er fjármagnað af Rannsóknaráði Noregs.

Markmið hópsins, sem hittist hér á landi um helgina, er að leggja grunn að alþjóðlegri vísindanefnd um sjálfbærni í málefnum jarðar og geims. Nefndinni er ætlað að sameina sjónarmið og þekkingu úr ólíkum fræðigreinum með þátttöku vísindafólks og alþjóðastofnana. „Hugmyndin er að nefndin starfi með svipuðum hætti og sambærilegar vísindanefndir sem fjalla um umhverfismál, loftslagsbreytingar og líffræðilega fjölbreytni. Nefndinni er ætlað að móta ráðleggingar fyrir stefnumótendur innan fjölbreyttra stofnana og samtaka,“ segir Adam.

Hann bendir á að fjölmargar stofnanir hafi unnið að málefnum sem tengjast sjálfbærri nýtingu geimsins. „Þetta er í fyrsta sinn sem reynt er að sameina þessa vinnu í einu samstarfsverkefni og skoða viðfangsefnið frá sjónarhorni margra fræðigreina, bæði innan félagsvísinda og náttúruvísinda. Slík nálgun er sérstaklega mikilvæg nú þegar umsvif í geimnum aukast hratt og metnaðarfull áform liggja fyrir um enn frekari starfsemi þar á komandi árum,“ segir Adam að lokum.

FOGOS logo

Deila

Efnisorð
Var efnið hjálplegt?

Hvers vegna var efnið ekki hjálplegt?

Takmarkað við 250 stafabil