VAL rannsókn

Kaffi eða te? Gluggasæti eða gangsæti? Sami réttur og síðast eða eitthvað nýtt? Við veljum frá morgni til kvölds. Nú gefst þér tækifæri til að leggja þitt af mörkum til að skilja ákvarðanatöku og mannlegt atferli betur: Rannsóknin VAL við Háskóla Íslands er komin í loftið og opið er fyrir þátttöku.

Sumar ákvarðanir tökum við nánast án þess að hugsa. Aðrar fá okkur til að velta möguleikunum fyrir okkur fram og til baka. Hvernig veljum við og hvað liggur að baki ákvörðunum okkar? Þessi kunnuglegi hluti daglegs lífs er viðfangsefni VAL.

Rannsóknin er leidd af vísindafólki við Háskóla Íslands í samstarfi við alþjóðlegan hóp rannsakenda. Ábyrgðarmaður hennar er Tinna Laufey Ásgeirsdóttir, prófessor við Háskóla Íslands. Markmiðið er að auka þekkingu á mannlegri hegðun og ákvarðanatöku, þekkingu sem getur nýst við stefnumótun, þjónustu og samfélagslausnir á fjölmörgum sviðum.


Tinna Laufey Ásgeirsdóttir
Ábyrgðarmaður rannsóknarinnar er Tinna Laufey Ásgeirsdóttir, prófessor við Háskóla Íslands. MYND/Kristinn Ingvarsson

Með þátttöku leggur þú þitt af mörkum til vísinda sem snerta líf okkar allra. Þú getur líka valið að fá persónulega endurgjöf um eigin ákvarðanatöku í samanburði við aðra þátttakendur. Endurgjöfin berst eftir að rannsókninni allri lýkur. Einnig geta þátttakendur fengið tímabilskort hjá samstarfsaðilum rannsakenda og peningagreiðslur í tengslum við þátttökuna.

Þátttaka fer fram á netinu og getur tekið allt að 45 mínútur. Hægt er að gera hlé og halda áfram síðar, en ljúka þarf þátttöku innan 24 klukkustunda frá innskráningu.

Rannsóknin er opin fólki á aldrinum 18–66 ára sem hefur rafræn skilríki og býr eða dvelur að jafnaði á höfuðborgarsvæðinu. Lögheimili þarf ekki að vera skráð þar.

Þitt val skiptir máli fyrir vísindin. Kynntu þér rannsóknina og taktu þátt á val.hi.is.

Deila

Efnisorð
Var efnið hjálplegt?

Hvers vegna var efnið ekki hjálplegt?

Takmarkað við 250 stafabil