Erasmus+ hefur veitt samstarfsverkefninu Medieval Heritage in Current Narratives (MECU) styrk að upphæð 35 milljónir króna. Markmið MECU er að efla borgaralega og þvermenningarlega hæfni með því að stuðla að aukinni þekkingu á evrópskum menningararfi.
Í verkefninu verða þróaðar nýjar kennsluaðferðir sem tengja menningarlæsi við miðaldaheimildir, dýpka evrópska samvinnu með sameiginlegri þróun námskrár og viðmiða, og efla fjölmiðlahæfni og viðnám gagnvart misnotkun miðalda í opinberri umræðu.
MECU er samstarfsnet sem er leitt af Háskóla Íslands, með þátttöku Karlsháskóla í Tékklandi, Miðevrópska háskólanum í Austurríki og Siena háskólanum á Ítalíu. Verkefnisstjóri MECU er Jan Alexander van Nahl, dósent í íslenskum miðaldabókmenntum við Háskóla Íslands, og umsjónarmaður verkefnisins er Eiríkur Smári Sigurðarson, rannsóknastjóri við Hugvísindasvið Háskóla Íslands.
MECU er unnin í framhaldi af rannsóknarverkefninu Culture and Politics from the Middle Ages to Today (COMMA), sem stóð yfir árin 2024–2026.