Skrifað var undir samstarfssamning á milli Háskólans í Reykjavík og Háskóla Íslands um opnun háskólaskrifstofu í Brussel í morgun. Silja Bára Ómarsdóttir, rektor HÍ, og Ragnhildur Helgadóttir, rektor HR, gerðu það.
Meðal helstu verkefna skrifstofunnar verður að auka sýnileika skólanna á alþjóðavettvangi og bæta aðstöðu skólanna til að sækja fé í styrkjakerfi Evrópusambandsins til rannsókna og nýsköpunar.
„Langflestir norrænir háskólar eru nú þegar með viðveru í Brussel, og við teljum mikilvægt að slást í þennan hóp og vera þar sem stefnumótun í mikilvægum hagsmunamálum okkar á sér stað,“ segir Silja Bára Ómarsdóttir, rektor HÍ.
„Opnun háskólaskrifstofu er gleðiefni. Við væntum þess að með opnuninni muni staða íslenskra háskóla styrkjast á alþjóðasviðinu og skrifstofan mun klárlega styðja við styrkjasókn. Við vorum glöð að fá styrk til að koma þessu af stað og vonandi verða allir háskólar landsins með í framtíðinni,“ segir Ragnhildur Helgadóttir, rektor HR.