Heimahöfn háskólakennslu, sem er samstarfsverkefni allra háskóla landsins og hefur það að markmiði að efla hæfni í háskólakennslu og styðja við faglega þróun kennara, var opnuð formlega af Loga Einarssyni menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra mánudaginn 17. ágúst.
Markmið verkefnisins er að styðja við faglega þróun á sviði háskólakennslu með opnum starfsþróunarnámskeiðum á netinu, bæði á íslensku og ensku. Verkefnið er unnið með styrk frá Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytinu.

Logi Einarsson menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra ávarpar gesti málþingsins. MYND/Tryggvi Már Gunnarsson
Í tilefni opnunarinnar var haldið málþing þar sem fjallað var um mikilvægi kennsluþróunar í háskólum, alþjóðlega strauma á sviðinu og framtíðarsýn um samstarf og gæði í íslensku háskólakerfi.
Meðal þeirra sem tóku til máls voru Logi Einarsson menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra, Guðrún Geirsdóttir, prófessor og fagstjóri Kennslumiðstöðvar Háskóla Íslands, og Auðbjörg Björnsdóttir, forstöðumaður Kennslu- og upplýsingatæknimiðstöðvar Háskólans á Akureyri, Helena Sigurðardóttir, kennsluráðgjafi við sama skóla, og John Baird kennsluráðgjafi í Háskólanum í Reykjavík.
