Háskóli Íslands og Landspítali hafa undirritað samstarfssamning um að setja á stofn Miðstöð krabbameinsrannsókna sem samstarfsvettvang vísindamanna sem stunda slíkar rannsóknir hér á landi. Silja Bára R. Ómarsdóttir, rektor Háskóla Íslands, og Runólfur Pálsson, forstjóri Landspítala, undirrituðu samninginn í Háskóla Íslands.
Hlutverk hinnar nýju miðstöðvar verður m.a. að móta stefnu á sviði krabbameinsrannsókna samhliða því að vera vettvangur grunnrannsókna, faraldsfræði, lýðheilsu og klínískra rannsókna tengdum krabbameinum þvert á fagstéttir og fræðasvið innan lands og utan.
Með miðstöðinni er ekki síst ætlunin að stuðla að enn nánara samstarfi fræðafólks Landspítala, Háskóla Íslands og annarra háskóla og stofnana á Íslandi á sviði krabbameinsrannsókna. Um leið á að samhæfa rannsóknaverkefni og hámarka nýtingu gagna til þverfaglegra rannsókna, allt í því augnamiði að nýta nýjustu þekkingu í þágu einstaklinga með krabbamein og efla þjónustu við þá.
Miðstöðinni er einnig ætlað að miðla nýrri þekkingu til samfélagsins, sjúklinga og stefnumótenda í heilbrigðismálum og styðja við kennsluþróun í krabbameinsfræðum innan Háskóla Íslands og annarra háskóla og stofnana á Íslandi. Miðstöð krabbameinsrannsókna mun einnig styðja vísindafólk við styrkjasókn til rannsókna á krabbameinum og alþjóðlegt samstarf á sviði krabbameinsrannsókna.
Fimm manna stjórn, skipuð fulltrúum HÍ og Landspítala, mótar starfsemi Miðstöðvar krabbameinsrannsókna og rekstur hennar en hún verður vistuð innan Heilbrigðisvísindastofnunar Háskóla Íslands og Landspítala á Heilbrigðisvísindasviði. Miðstöðin starfar að öðru leyti án fastrar staðsetningar, með stuðningi, ábyrgð og skuldbindingum þeirra rannsakenda, háskóla, háskóladeilda og stofnana sem koma að einstökum verkefnum og rannsóknum innan hennar.