Hólmfríður Sveinsdóttir, forseti Háskóla Íslands á Hólum, fundaði með þingmönnum Norðvesturkjördæmis í heimsókn þeirra um Skagafjörð, ásamt fulltrúum sveitarfélagsins Skagafjarðar. Á fundinum var farið yfir stöðu og framtíðarsýn háskólans, þau tækifæri sem felast í nýrri háskólasamstæðu Háskóla Íslands og mikilvægi starfseminnar fyrir atvinnulíf og byggðaþróun á Norðurlandi vestra.
Í kynningu forseta kom fram að markmið háskólasamstæðu Háskóla Íslands sé að efla gæði náms, rannsókna og stoðþjónustu, auka samstarf við atvinnulíf og samfélag og tryggja að öflug háskólamenntun og rannsóknastarfsemi séu til staðar um land allt. Með tilurð háskólasamstæðu Háskóla Íslands, þar sem Háskóli Íslands á Hólum og Stofnun rannsóknasetra Háskóla Íslands eiga sameiginlega aðild, skapast öflugur þekkingarinnviður sem styður bæði við sérhæfða starfsemi á landsbyggðinni og alþjóðlega samkeppnishæfni íslensks háskóla- og rannsóknasamfélags.