Göngum saman, styrkþegar 2026

Sjö rannsóknarverkefni vísindamanna og nemenda Háskóla Íslands hlutu samtals 15 milljónir króna úr Vísindasjóði Göngum saman í ár en styrkir voru afhentir við hátíðlega athöfn í Hannesarholti 22. október. Þetta var 20. styrkúthlutun félagsins, sem hefur frá stofnun árið 2007 veitt nærri 200 milljónir króna til grunnrannsókna á brjóstakrabbameinum.

Rannsóknirnar sem hljóta styrki í ár beinast að ólíkum þáttum brjóstakrabbameina, meðal annars meinvarpamyndun, erfðafræðilegum þáttum, efnaskiptum krabbameinsfrumna og þróun nýrra meðferðarleiða.

Með styrkveitingunum leggur Göngum saman sitt af mörkum til að efla grunnrannsóknir á brjóstakrabbameinum hér á landi og styðja við vísindastarf sem getur lagt grunn að framförum í meðferð sjúkdómsins.

Styrkþegar Vísindasjóðs Göngum saman 2026

Adam Ray Smith, rannsóknalektor á Verkfræði- og náttúruvísindasviði Háskóla Íslands, hlaut 1.500.000 kr. til verkefnisins Áhrif súrefnisskorts á meinvarpamyndun brjóstakrabbameinsfrumna og möguleg klínísk inngrip.

Alexander Örn Andrésson, meistaranemi í líf- og læknavísindum við Háskóla Íslands, hlaut 2.000.000 kr. til verkefnisins Áhrif HER2-sértæks peptíðs á frumur í tví- og þrívíðri rækt.

Árni Ásbjarnarson, aðjunkt og rannsóknasérfræðingur við Heilbrigðisvísindasvið Háskóla Íslands, hlaut 2.500.000 kr. til verkefnisins Áhrif Azithromycin á sérhæfingu og efnaskipti hvatbera í þríneikvæðum brjóstakrabbameinsfrumum.

Elina María Jónsdóttir, meistaranemi í líf- og læknavísindum við Háskóla Íslands, hlaut 2.200.000 kr. til verkefnisins Breytingar á viðtakastöðu í estrógenjákvæðum brjóstakrabbameinum hjá BRCA2-arfberum og konum ≤40 ára.

Sigríður Klara Böðvarsdóttir, forstöðumaður Lífvísindaseturs Háskóla Íslands, hlaut 2.500.000 kr. til verkefnisins Magngreining gallsýra í blóðvökva hjá brjóstakrabbameinssjúklingum.

Vera Amanda Varis, doktorsnemi í líf- og læknavísindum við Háskóla Íslands, hlaut 2.300.000 kr. til verkefnisins Samræktanir til að rannsaka áhrif æðaþelsseyttra þátta á meinvarpsmyndun í brjóstakrabbameini.

Weronika Klaudia Wróbel, meistaranemi í líf- og læknavísindum við Háskóla Íslands, hlaut 2.000.000 kr. til verkefnisins Mat á virkni sameindalyfja sem virkja ónæmiskerfið gegn HER2-jákvæðu brjóstakrabbameini.

Göngum saman, styrkþegar 2026
Aðstandendur verkefnanna sjö. Frá vinstri: Weronika Klaudia Wróbel, Vera Amanda Varis, Elina María Jónsdóttir, Árni Ásbjarnarson, Alexander Örn Andrésson, Adam Ray Smith, Sigríður Klara Böðvarsdóttir. MYND/Þórdís Erla Ágústsdóttir

Um Göngum saman

Göngum saman var stofnað árið 2007 með það að markmiði að safna fé til grunnrannsókna á brjóstakrabbameinum. Frá upphafi hefur félagið byggt starf sitt á þeirri sannfæringu að aukin þekking á orsökum og eðli sjúkdómsins sé forsenda framfara í greiningu og meðferð.

Starf félagsins er alfarið unnið í sjálfboðavinnu og hver einasta króna sem safnast rennur óskipt í Vísindasjóð Göngum saman.

Fjáröflun félagsins er fjölbreytt. Þar má meðal annars nefna áheit á hlaupara í Reykjavíkurmaraþoninu, sölu Brauð & Co á Brjóstasnúðum í tilefni Mæðradagsins, styrktargöngu Volcano Trails í Þórsmörk og sölu á varningi félagsins, nú síðast bleikum klútum sem hannaðir voru í samstarfi við Herrafataverzlun Kormáks og Skjaldar.

Auk þess hafa fjölmargir einstaklingar, félagasamtök og fyrirtæki stutt starf félagsins með framlögum og margvíslegri aðstoð.

Vísindafólk og félagsmenn Göngum saman leggja sitt af mörkum með ólíkum hætti, en markmiðið er sameiginlegt – að ganga saman í átt að lækningu.

Vefsíða Göngum saman

Göngum saman á Facebook

Göngum saman á Instagram

Fleiri myndir Þórdísar Erlu Ágútsdóttur frá úthlutun styrkjanna má sjá hér að neðan.

Deila

Efnisorð
Var efnið hjálplegt?

Hvers vegna var efnið ekki hjálplegt?

Takmarkað við 250 stafabil