Sjáum ís á norðurpól, frosinn
Sjáum pálmatré í sól
Sjáum eyðimerkursand, fokinn
Sjáum gos og glænýtt land
Þessar línur er að finna í laginu Könnum heiminn eftir Ívar Örn Benediktsson, rannsóknaprófessor við Jarðvísindastofnun Háskólans, sem sendi nýverið frá sér sína fyrstu hljómplötu. Eflaust álykta einhverjir út frá titli og texta að Ívar sé algjörlega hugfanginn af vinnu sinni, sem hann sinnir m.a. á jöklum og úti á sjó. Ívar er það að vissu marki en sjálfur segir hann tónlistina vera sína hugleiðslu og aftengingu frá amstri hversdagsins. Hugmyndin að ofangreindu lagi kviknaði út frá ferðaþrá á COVID-tímum en það er var einmitt á þeim tíma sem hjólin, eða kannski platan, fóru að snúast á ferli hans sem tónlistarmaður.
Platan nýja ber nafn höfundarins, Ívar Ben, og hefur að geyma 11 lög eftir Ívar. „Ég á textana við sjö þeirra, tveir eru eftir Steindór Dan Jensen píanóleikara og tvö lög eru án orða,“ segir hann um tónlistina sem hann lýsir sjálfur sem mjúku dægurlagapoppi.

Kápa plötunnar nýju sem ber nafn Ívars.
Hitað upp fyrir Skítamóral og Sálina á unglingsárunum
Ívar hefur fengist við tónlist allt frá tíu ára aldri en þá fékk þessi fjölhæfi Skagamaður hljómborð að gjöf frá foreldrum sínum. „Ég fór fljótlega að reyna að búa eitthvað til. Fann strax meiri þörf fyrir að skapa eitthvað en að læra almennilega á hljóðfærið – sem ég sé reyndar eftir að hafa aldrei gert. Ég keypti mér svo gítar á unglingsárum, lærði sjálfur og fór að pikka upp lög og prófa mig áfram við að setja saman hljóma og línur,“ segir hann.
Á framhaldsskólaárunum í Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi var Ívar í tveimur skammlífum hljómsveitum. Önnu þeirra var hljómsveitin Fleyja sjér sem varð í þriðja sæti í Frostrokki, tónlistarkeppni nemendafélags skólans. „Ég var svo í stóru soul-bandi á Skaganum þar sem ég lék á conga-trommur og slagverk og fannst geysilega gaman. Hljómsveitin kom nokkrum sinnum fram á Akranesi, við spiluðum á 17. júní ef ég man rétt og hituðum upp fyrir Skítamóral á skólaballi. Svo hituðum við upp fyrir Sálina hans Jóns míns á sveitaballi í Hreðavatnsskála, sem var gríðarlegt stuð,“ segir Ívar og bætir við að líklega hafi það verið hápunktur hljómsveitarinnar að Sálin skyldi óska eftir því að fá hana aftur sem upphitunarband. „En þá fór trommarinn okkar á sjóinn og bandið lagðist af í kjölfarið.“
Á háskólaárum Ívars stofnaði hann skúffudúettinn Alda 57 ásamt góðum félaga og nærsveitunga úr Innri-Akraneshreppi, Sævari Inga Jónssyni, en þeir leigðu íbúð saman á Öldugötu 57 við þriðja mann. „Við höfðum kynnst í FVA og uppgötvað sameiginlegan áhuga á íslenskri tónlist. Sævar er virkilega góður textasmiður og ég samdi töluvert af lögum við textana hans og einhver gerðum við saman. Þetta voru svona sveitarómantísk dægurlög, sem stóð nú alltaf til að gera eitthvað meira með og gefa jafnvel út. Þau liggja enn þá í skúffunni en hver veit nema þau brjótist fram í dagsljósið einhvern tímann,“ segir Ívar kíminn.

Ívar að störfum ásamt samstarfsfólki í jarðvísindum. MYND/Úr einkasafni
Þegar kom að framhaldsnámi í jarðvísindum við Kaupmannahafnarháskóla og Háskóla Íslands varð minni tími til tónlistarsköpunar enda Ívar einnig kominn með fjölskyldu. „En þegar ég var lektor við Lundarháskóla í Svíþjóð (2012-2015) vorum við nokkrir íslenskir félagar sem stofnuðum hljómsveitina Skánandi og lékum við nokkur tilefni þar sem Íslendingar komu saman, þ.á m. í júróvisjónpartíi skömmu fyrir keppnina í Malmö,“ segir hann enn fremur um tónlistarferilinn.
Á auðvelt með að semja lög
Ívar segist aðspurður eiga mjög auðvelt með að semja lög, setja saman hljóma og laglínur. „Ég gríp í gítarinn nánast á hverjum degi, það er mín hugleiðsla og aftenging frá amstri hversdagsins. Oft verður eitthvað til, einhver lína eða hljómagangur, sem ég held svo áfram að vinna með þar til ég er kominn með nokkuð vel mótað lag. Textagerðin er mér mun erfiðari og ég gef mér miklu sjaldnar tíma til að semja texta en hugmyndir að þeim fæðast bara í hversdeginum, við að heyra eða sjá eitthvað sem grípur athyglina eða snertir við manni. Á plötunni eru textarnir mínir bara um ástina og lífið í víðum skilningi – s.s. um stríð og frið, ferðaþrá frá Covid-tímum, tjáningu, föðurmissi, ást til konunnar minnar og fólksins míns,“ segir hann um sköpunarferlið.
Spurður um áhrifavalda í tónlist segir hann þá koma úr ýmsum áttum. „Ætli sú tónlist sem hreyfir við manni hafi ekki mest áhrif á hvernig tónlist maður semur. Það getur verið eitthvað skínandi tært og fallegt eða eitthvað sem er skítugt og grúvar. Melódísk dægur- og rokktónlist höfðar mikið til mín en líka þjóðlagatónlist, soul og funk og blús og smá af jazzi. Ef ég á að nefna hljómsveitir og tónlistarmenn þá koma Bítlarnir fyrst upp í hugann, þeir hitta mig beint í hjartað oftar en aðrir, en líka t.d. U2, Turin Brakes og John Mayer, og seventies rokk og proggrokk eins og Led Zeppelin og Queen. Ég hlusta mikið á íslenska tónlist sem hefur án nokkurs vafa líka mikil áhrif á mína tónlistarsköpun – Jón Ólafs, Nýdönsk, Sálin, Maggi Eiríks og margir fleiri,“ segir Ívar en þessir síðastnefndu tónlistarmenn áttu sannarlega eftir að vera áhrifavaldar í útgáfu hans.

