Fuglar heilla okkur menninna flesta svo sannarlega og ekki síst hér á landi þar sem farfuglarnir boða hreinlega vorið og sumarkomuna. Allt í einu lifnar allt við í mónum með söng og fjörurnar fyllast af kvakandi fuglum sem eru komnir hingað heim til að undirbúa varp. Aðrir til að tylla sér um stund og hlaða tankinn áður en þeir fljúga lengra á sínar varpslóðir norðar á jarðkúlunni. Það hefur verið kalt á landinu undanfarið, norðanáttir ríkjandi, og því hefur mikið safnast af skógarþresti í görðum á höfuðborgarsvæðinu, en hann er að stærstum hluta farfugl þótt hluti af stofninum þreyi hér veturinn. Skógarþrastaþyrpingar, sem hafa borist hingað frá vesturhluta Evrópu- mest til Bretlands, Írlands, Frakklands og Pýreneaskaga, hefur þar með bæst við þann fjölda þrasta sem þiggur fóður frá fólki lungann úr vetrinum.
Sölvi Rúnar Vignisson, doktorsnemi í líffræði við Háskóla Íslands og kennari, leiðir göngu á vit farfuglanna okkar í Grafarvogi laugardaginn 13. apríl kl. 13. Við munum örugglega sjá skógarþresti því þeir halda gjarnan til í trjánum sem eru við gönguleiðina meðfram voginum. Gangan er hluti af verðlaunaverkefni Háskóla Íslands og Ferðafélags barnanna sem er angi innan Ferðafélags Íslands.
Með fróðleik í fararnesti
Verkefnið kallast „Með fróðleik í fararnesti“ og er það heiti afar viðeigandi enda mun Sölvi Rúnar ausa úr djúpum viskubrunni sínum. Að þessu sinni verður einnig Hið íslenska náttúrufræðifélag með í för, en HÍN er fornfrægt félag, stofnað árið 1889 í þeim tilgangi að efla íslensk náttúruvísindi og glæða áhuga og þekkingu fólks á öllu sem snertir náttúrufræði. Sölvi Rúnar er formaður félagsins.
Gangan hefst við Grafarvogskirkju þann 13. apríl klukkan 13 og tekur um tvo tíma á meðan fjarar út í voginum og ætti því göngufólk að sjá æ fleiri fugla koma í fjöruna eftir því sem tímanum vindur fram. Frábært er að hafa með sér sjónauka og nettar fuglaskruddur til að blaða í. Gengið verður með fram Grafarvoginum og augum og sjónaukum beint í fjöruna og út á voginn. Sölvi Rúnar og hans teymi mun mæta með sérstaka fuglasjónauka sem afar gagnlegt er að nota og einstaklega skemmtilegt fyrir þau að rýna í slíka gripi sem aldrei hafa gert það, skyndilega er eins og maður hafi fuglina í fingurlengd frá sér. Talandi um sjónauka, orðið kemur úr smiðju þjóðskáldsins og náttúrufræðingsins Jónasar Hallgrímssonar, sem var einmitt mikill fuglaunnandi en tvö af hans þekktustu ljóðum fjalla einmitt um fugla:
Vorboðinn ljúfi, fuglinn trúr sem fer,
með fjaðrabliki háa vegaleysu
í sumardal að kveða kvæðin þín,
Hér er ort um skógarþröst en í hinu um heiðlóuna.
Snemma lóan litla í
lofti bláu „dírrindí“
undir sólu syngur:
„lofið gæsku gjafarans -
grænar eru sveitir lands,
fagur himinhringur.
Það er ekki að ástæðulausu sem fuglar heilla skáldin okkar, þeir eru einkennandi fyrir árstíðirnar og setja í raun einstakan svip á íslenskt lífríki og umhverfi og eru að auki tákn um frelsið.
Fuglafræðingurinn Sölvi Rúnar
Sölvi Rúnar er mikill áhugamaður um fugla og segir að áhuginn hafi kviknað snemma þegar hann skoðaði fugla sem krakki með föður sínum. „Áhuginn vaknaði svo aftur í grunnnáminu við Háskóla Íslands. Rannsóknir hafa enda alltaf heillað mig og þorstinn í að læra meira er óslökkvandi.“
Íslendingar telja sig vera ríka af fuglum og eru duglegir að njóta söngs þeirra í þéttbýli og mólendi, í skógum, klettum, björgum og á heiðum og vötnum, svo dæmi séu tekin. Á Íslandi verpa samt færri en 80 fuglategundir en hér er að finna hlutfall sem er frábrugðið flestum löndum Evrópu vegna fjarlægðar frá meginlandinu og einstöku landslagi. „Hér er lítið um skóga og háplöntur en mikið um víðerni, eyjar og fuglabjörg sem eru varin frá helstu rándýrum.“