Fyrirlesarar

Gestafyrirlestrar eru mikilvægur hluti náms. Þeir gefa nemendum innsýn í raunverulegar áskoranir atvinnulífsins, tengja fræðilega þekkingu við framkvæmd og gera kenningar áþreifanlegri.

En hvað ef nemendur gætu hlustað á framúrskarandi sérfræðinga og reynslumikla stjórnendur þegar þeim hentar best – og jafnvel hlustað aftur til að dýpka skilning sinn?

Í verkefninu „Enhancing Master’s Level Project Management Education: Bringing Industry Expertise to Classroom for Self-paced Learning“, sem hlotið hefur stuðning frá Kennslumálasjóði Háskóla Íslands, verður þetta að veruleika fyrir nemendur í meistaranámi í verkefnastjórnun í Viðskiptafræðideild á næsta misseri (lotu IV).

Nemendur fá aðgang að yfir tíu upptökum með gestafyrirlestrum frá leiðandi sérfræðingum úr ólíkum atvinnugreinum þar sem fjallað verður um fjölbreytt viðfangsefni verkefnastjórnunar. Fyrirlestrarnir verða hluti af námsefninu. Viðbótarefni verður aðgengilegt nemendum hvenær sem þeir vilja.

Meðal fyrirlesara verða Króatinn Mladen Vukomanović, forseti IPMA, alþjóðlegra fag- og regnhlífarsamtaka á sviði verkefnastjórnunar, og Bandaríkjamaðurinn Einar von Gravrock, stofnandi tveggja fyrirtækja sem náð hafa svokallaðri einhyrningsstöðu (unicorn status), sprotafyrirtækja sem metin eru á yfir einn milljarð Bandaríkjadala. Hann hefur meðal annars verið valinn tæknifrumkvöðull Alþjóðaefnahagsráðsins (WEF Technology Pioneer) og verið á lista Goldman Sachs yfir 100 áhugaverðustu frumkvöðlana (100 Most Intriguing Entrepreneurs).

Markmiðið með framtakinu er að færa reynslu atvinnulífsins enn nær nemendum og gefa þeim sveigjanlegri leið til að læra af þeim sem takast á við raunverulegar áskoranir í verkefnastjórnun.

Deila

Efnisorð
Var efnið hjálplegt?

Hvers vegna var efnið ekki hjálplegt?

Takmarkað við 250 stafabil