Gervigreind var í brennidepli á glæsilegri ráðstefnu Kennsluakademíu opinberu háskólanna sem fram fór föstudaginn 22. nóvember í Veröld - húsi Vigdísar en við þetta tilefni voru 14 kennarar úr opinberu háskólunum jafnframt teknir inn í akademíuna. Dagskráin var þéttskipuð fróðlegum erindum í sex málstofum ásamt aðalfyrirlestrum og pallborði. Um 100 manns sóttu ráðstefnuna.
Ráðstefnan er hluti af árlegri „ferðaráðstefnu“ Kennsluakademíunnar sem fer milli sviða opinberu háskólanna og hefur það markmið að halda kennslu á lofti og skapa rými fyrir fólk til að deila reynslu og hugmyndum um háskólakennslu.
Í ár var hún skipulögð af meðlimum Kennsluakademíunnar á Heilbrigðisvísindasviði Háskóla Íslands. Stýrihópinn skipuðu Berglind Eva Benediktsdóttir, Lyfjafræðideild, Heiða María Sigurðardóttir, Sálfræðideild, Helga Helgadóttir, Lyfjafræðideild, Pétur Henry Petersen, Læknadeild og Steinunn Arnars Ólafsdóttir, Læknadeild.

Fulltrúar Heilbrigðisvísindasviðs skipulögðu ráðstefnuna að þessu sinni. MYND/Kristinn Ingvarsson
Helga Helgadóttir, varaformaður Kennsluakademíunnar og lektor við Lyfjafræðideild, opnaði ráðstefnuna og Unnur Anna Valdimarsdóttir, forseti Heilbrigðisvísindasviðs HÍ, bauð svo gesti velkomna. Í opnunarávarpi sínu kynnti Unnur meðal annars glæsilega aðstöðu í færni- og hermisetrinu HermÍs þar sem nemendur æfa klínísk vinnubrögð við aðstæður sem líkja eftir raunverulegum aðstæðum á vettvangi.
Hvernig breytir gervigreind háskólasamfélaginu?
Aðalfyrirlesarar voru þrír. Hafsteinn Einarsson, dósent við Verkfræði- og náttúruvísindasvið HÍ, fjallaði um fjöldaframleiðslu prófdæma og persónusniðnar nálganir með gervigreind og hvernig nýta má tæknina til að gera námsmat markvissara. Ragna Kemp Haraldsdóttir, dósent við Félagsvísindasvið HÍ, var með erindi um áhrif gervigreindar á gagnaúrvinnslu í háskólastarfi með áherslu á innbyggðar skekkjur í gervigreindarlíkönum og möguleg áhrif hennar á ákvarðanatöku. Sigurður Fjalar Jónsson og Hjörvar Ingi Haraldsson, framhaldsskólakennarar við Fjölbrautaskólann í Breiðholti, voru með erindið „Að móta morgundaginn, gervigreind, nemendur og háskólinn“ og tengdu þannig saman reynslu úr framhaldsskólum og áskoranir háskóla.

Aðalfyrirlesarar á ráðstefnunni: Hjörvar Ingi Haraldsson, Sigurður Fjalar Jónsson, Ragna Kemp Haraldsdóttir og Hafsteinn Einarsson. MYND/Kristinn Ingvarsson
Í kjölfarið tóku aðalfyrirlesarar sæti í pallborði ásamt Hróbjarti Árnasyni, dósent og formanni Kennsluakademíunnar, Arent Orra Claessen, forseta Stúdentaráðs, og Sigríði Þorgeirsdóttur, prófessor við Hugvísindasvið HÍ. Þar gafst tækifæri til að ræða hvernig gervigreind breytir háskólasamfélaginu – ekki aðeins fyrir kennara heldur líka fyrir nemendur og stjórnendur. Heiða María Sigurðardóttir stjórnaði pallborði. Rætt var um áskoranir og tækifæri við notkun gervigreindar í kennslu og við nám nemenda.
Fjölbreyttar málstofur voru á dagskrá og bárust yfir 40 erindi á málstofuna þar sem gervigreind og kennsla á háskólastigi var í forgrunni. Málstofurnar endurspegluðu fjölbreytileika innan opinberu háskólanna þar sem áhersla var á gervigreind og fjölbreytta kennsluhætti.

Frá einni af málstofum ráðstefnunnar. MYND/Kristinn Ingvarsson
Í ár var boðið upp á þrjár vinnustofur sem voru afar fjölbreyttar og áhugaverðar. Bethany Louise Rogers, verkefnisstjóri frá Kennslumiðstöð Háskóla Íslands, fjallaði um hvernig viðhorf nemenda til gervigreindar hefði breyst frá forvitni yfir í meiri varfærni og hvað sú þróun þýddi fyrir kennara. Jette Jörgensen Mebrouk, Hafdís Skúladóttir og Sean Michael Scully frá Háskólanum á Akureyri fjölluðu um nemendamiðaða nálgun þar sem vinnustofan endaði á gagnvirku „Fiskiskálar“-pallborði þar sem áhorfendur deildu sjónarmiðum og starfsháttum til að stuðla að tækifærum til tengslamyndunar. Þriðja vinnustofan snerist um hvernig nýta má gervigreind í endurskoðun námskeiða með ABC-námshönnun, en umsjón með henni var í höndum verkefnisstjóra á Kennslumiðstöð HÍ, Hörpu Daggar Fríðudóttur og Aleksöndru Kojic.
Stýrihópur, sem skipulagði ráðstefnuna, var sammála um að hún væri mikilvægt innlegg í umræðu um háskólanám og -kennslu. Heiða María nefndi þar sérstaklega að gervigreindartækni væri í svo örri þróun að bæði nemendur og kennarar þyrftu að hafa sig alla við til að fylgja tækninni eftir og þau vinnubrögð og viðmið sem giltu fyrir ári væru ef til vill úrelt í dag. Því væri mikilvægt að gefa fólki tækifæri til símenntunar til að geta aðlagað háskólann að nýjum tímum.
Inntaka nýrra meðlima – formleg lok ráðstefnunnar