Stór hópur starfsfólks og stúdenta Háskóla Íslands tekur þátt í Hringborði norðurslóða (Arctic Circle) sem fram fer í Hörpu dagana 8.-10. október. Skólinn tekur forskot á sæluna með hliðarviðburði um áskoranir á norðurslóðum miðvikudaginn 7. október.
Arctic Circle er ein stærsta árlega ráðstefnan í heiminum á sviði norðurslóða en hún hefur verið haldin í Hörpu frá árinu 2013. Á Hringborðið mætir fólk alls staðar að úr heiminum, á þriðja þúsund manns, til þess að ræða framtíð norðurslóða og reyndar jarðarinnar allrar. Meðal þátttakenda eru fulltrúar frumbyggja á norðurslóðum, stjórnvalda, samtaka, atvinnulífs, háskóla, hugveita, umhverfissamtaka og almennings.
Hringborði norðurslóða er ekki síst ætlað að efla samtal og samstarf um framtíð og þróun norðurskautsins, en talið er að mikilvægi norðurslóða muni aukast á næstu áratugum, ekki síst vegna loftslagsbreytinga. Vísindafólk Háskóla Íslands af fjölbreyttum fræðasviðum hefur frá upphafi tekið virkan þátt í ráðstefnunni, bæði með því að skipuleggja eigin málstofur og taka þátt í málstofum annarra.
Undanfarin ár hefur Háskóli Íslands jafnframt staðið fyrir hliðarviðburði í aðdraganda ráðstefnunnar og engin breyting er á því í ár. Miðvikudaginn 7. október munu Háskóli norðurslóða (UArctic) og Háskóli Íslands bjóða til málþings í Hátíðasal HÍ um áskoranir norðurslóða með þátttöku fræðafólks, sérfræðinga og fagfólks víða að.
Á málþinginu verður fengist við spurningar tengdar samkeppni stórvelda og öryggismál, vaxandi eftirspurn eftir auðlindum og áhrif hennar á umhverfisvernd, lærdómi sem sækja má til íshvolfssvæða á tímum hraðra umhverfisbreytinga og áhrifum loftslagsbreytinga og umsvifa manns á líffræðilega fjölbreytni. Ráðstefnan hefst kl. 13 í Hátíðasal og er öllum opin.