Dagana 6.–8. október fer fram í Reykjavík 34th Nordic Symposium on Tourism and Hospitality Research (NS34), ein stærsta og virtasta ráðstefna Norðurlanda á sviði ferðamála- og ferðaþjónusturannsókna. Ráðstefnan er skipulögð af Rannsóknamiðstöð ferðamála (RMF) og safnar saman fræðafólki, rannsakendum og sérfræðingum víðs vegar að af Norðurlöndum og víðar.
Ferðamáladeild Háskóla Íslands á Hólum á sterka aðkomu að ráðstefnunni. Ingibjörg Sigurðardóttir, deildarforseti Ferðamáladeildar, situr í skipulagsnefnd ráðstefnunnar, stýrir sérstakri lykilmálstofu (keynote session) og flytur jafnframt eigið erindi á ráðstefnunni.
Áskell Heiðar Ásgeirsson, lektor við Ferðamáladeild og sérfræðingur á sviði viðburðastjórnunar, flytur erindi á ráðstefnunni. Þá kynna þær Laufey Haraldsdóttir, lektor við Ferðamáladeild, og Sigríður Rósa Bjarnadóttir, meistaranemi við deildina, rannsóknir sínar. Laufey situr jafnframt í vísindanefnd ráðstefnunnar og hefur tekið virkan þátt í undirbúningi hennar. Þátttaka þeirra undirstrikar öflugt rannsóknar- og fræðastarf deildarinnar og virka þátttöku hennar í alþjóðlegu fræðasamfélagi.
Nemendur Ferðamáladeildar leggja einnig sitt af mörkum til ráðstefnunnar en þeir starfa sem sjálfboðaliðar og taka þátt í framkvæmd hennar. Þátttakan veitir þeim dýrmæta reynslu af skipulagi alþjóðlegrar ráðstefnu og tækifæri til að kynnast fræðafólki og sérfræðingum á sínu fræðasviði.
Yfirskrift ráðstefnunnar í ár er Tourism in a Changing World: An Active Agent for Good? og verður þar fjallað um fjölbreytt málefni sem tengjast framtíð ferðamennsku, sjálfbærni, samfélagsáhrifum, nýsköpun og þróun áfangastaða.
Þátttaka starfsfólks og nemenda HÍ á Hólum undirstrikar sterka stöðu Ferðamáladeildarinnar innan íslensks og alþjóðlegs rannsóknasamfélags og mikilvægt framlag hennar til þróunar þekkingar á sviði ferðamála.