Dr. Enrique del Acebo Ibáñez, prófessor í félagsfræði við University of Salvador og University of Buenos Aires í Argentínu, tók í gær við heiðursdoktorsnafnbót Félagsfræði-, mannfræði- og þjóðfræðideildar fyrir frjótt og farsælt samstarf sitt við Háskóla Íslands.
Enrique del Acebo Ibáñez er vel kunnur í heimalandinu sem fræðimaður og prófessor í félagsfræði. Auk þess að vera prófessor við tvo háskóla í Buenos Aires er del Acebo Ibáñez fræðimaður innan vébanda vísindaakademíu Argentínu – CONICET ásamt því sem hann starfar sem rithöfundur, listmálari og kvikmyndagerðarmaður. Hann hefur ritað um það bil 30 bækur og birt um 200 fræðigreinar.
Sérsvið del Acebo Ibáñez eru fjölbreytt og hverfast um félags- og hugvísindi. Hann hefur verið í samstarfi við fjölmarga kennara í HÍ bæði af Félagsvísinda- og Hugvísindasviði í rúma tvo áratugi og menningar- og fræðasamfélagið hefur ríkulega notið góðs af frumkvæði og ræktarsemi hans við íslenskt samfélag, ekki síst Háskóli Íslands. Del Acebo Ibáñez hefur reglulega komið til Íslands í akademískum tilgangi og bæði kennt og haldið fyrirlestra við skólann og við Háskólann á Akureyri. Þá hefur hann hefur verið gestaprófessor við Háskóla Íslands frá 2015.
Árið 2003 var undirritaður samstarfssamningur milli HÍ og Salvador-háskóla, ekki síst fyrir tilstilli del Acebo Ibáñez. Í krafti samningsins hafa tugir nemenda frá HÍ dvalið við skólann ytra við nám í greinum eins og bókmenntafræði, sögu, listfræði, kvikmyndafræði og félagsvísindum og íslenskir fræðimenn dvalið í Argentínu í boði þarlendra háskóla.