Fornleifafræði er gríðarlega spennandi fag þótt hún sé nú ekki alveg eins og bíómyndirnar gefa gjarnan til kynna. Stundum felst hún í því að vera skítug upp fyrir haus í ausandi rigningu ofan í drulluflagi. Og stundum getur ruslahaugur sagt miklu meira um líf fólksins í fortíðinni en merkustu dýrgripir sem fara beint inn á söfn. Þetta vita þau Snædís Sunna Thorlacius og Arthur Knut Farestveit býsna vel en í hlaðvarpinu þeirra Moldvarpinu grafa þau sig hreinlega ofan í íslenska fortíð og segja frá því sem leynist undir yfirborðinu – stundum bókstaflega.
Snædís er nú í doktorsnámi í landfræði við HÍ þar sem hún rannsakar seljabúskap á Íslandi og samspil manns og náttúru í gegnum aldirnar. Hún og Arthur eru bæði fornleifafræðingar að mennt frá HÍ og doktorsrannsókn Snædísar liggur á mörkum fræðigreinanna tveggja. Arthur starfar nú í Danmörku við uppgröft og fornleifaskráningu. Þau sitja jafnframt bæði í stjórn Félags fornleifafræðinga, Snædís sem formaður og Arthur sem ritari.
Moldvarpið fór fyrst í loftið í desember 2024 og þar taka þau fyrir íslenskar fornleifar, minjar og menningarsögu, allt frá hinni frægu steinkistu Páls biskups í Skálholti og norrænu byggðunum á Grænlandi til útilegumanna, aftökustaða og 18. aldar morðmála. Þau segja bæði að þetta hefði aldrei verið hægt án stuðnings en verkefnið hefur notið styrks úr Fornminjasjóði frá upphafi.
Engir hattar, engar svipur, meira blautir plastpokar
„Mjög margir sem við hittum segjast hafa dreymt um að verða fornleifafræðingar og finnst þetta mjög spennandi starf en mjög fáir vita í raun og veru hvað felst í þessu dagsdaglega,“ segir Snædís og brosir, sem hún virðist reyndar gera í hlaðvarpinu þótt það sjáist ekki, því það er mikil gleði í öllum hlaðvarpsþáttunum.
En einmitt þarna kviknaði hugmyndin að hlaðvarpinu þeirra, í þessari togstreitu milli spennunnar við að uppgötva eitthvað og aðferðanna við að nálgast fortíðina. Hlaðvarpið ber eins og áður sagði hið fyndna en táknræna heiti Moldvarpið. Nafnið er lýsandi fyrir starf fornleifafræðinga því stundum eru þeir hreinlega með nefið ofan í moldinni eða moka henni upp með skóflum og skeiðum.
Snædís Sunna og Arthur vildu nota Moldvarpið til að segja frá því hvernig fornleifarannsóknir fara raunverulega fram, hvað fornleifafræðingar sjá þegar þeir horfa á stað sem öðrum virðist kannski ekki ýkja merkilegur, hvaða aðferðum þeir beita og ekki síst hvernig hægt sé að lesa sögu úr því sem kemur upp úr moldinni.
Þau segja bæði að stundum sé veruleikinn heldur hversdagslegri en í Indiana Jones-myndunum; engir hattar, engar svipur og alls ekki verið að berjast við illþýði um dularfulla gripi sem hafa verið huldir mönnum í aldaraðir.
„Ónei, langt í frá,“ segir Snædís og hlær. „Oftar en ekki erum við úti á víðavangi, drullug upp fyrir haus að reyna að skrifa á blauta plastpoka.“
Arthur bendir á að verkfærakistan sé líka óvenjuleg. Hlutir sem voru alls ekki framleiddir með fornleifafræði í huga geta orðið algerlega ómissandi við uppgröft. Golf-tí eru til dæmis notuð til merkinga á vettvangi og eru eiginlega brýnni hjá fornleifafræðingum en hjá kylfingum í teighögginu.
„Ég veit ekki hvar ég væri án tía í mörgum mismunandi litum,“ segir Arthur og hlær.