Bandaríska hjúkrunarakademían (American Academy of Nursing) hefur útnefnt Connie W. Delaney, prófessor og deildarforseta Hjúkrunarfræðideildar Minnesota-háskóla og heiðursdoktor við Háskóla Íslands, „goðsögn í lifanda lífi“ (Living Legend). Delaney hefur bæði kennt við Háskóla Íslands og veitt ýmiss konar ráðgjöf í þróun heilbrigðisvísinda bæði innan skólans og annars staðar í íslensku samfélagi. Delaney tekur við viðurkenningunni við hátíðlega athöfn á ráðstefnu akademíunnar í október.
Delaney er mörgum íslenskum hjúkrunarfræðingum og fleirum að góðu kunn. Hún hefur verið leiðandi á heimsvísu í að innleiða upplýsingatækni og stafræna tækni í menntun, rannsóknum og á vettvangi hjúkrunar og á öðrum sviðum heilbrigðisvísinda. Hún var meðal þeirra fyrstu innan hjúkrunar til að safna kóðuðum gögnum um hjúkrun úr rafrænum sjúkraskrám sem leiddu til þróunar og innleiðingar á lágmarksskráningu vistunarupplýsinga í hjúkrun og hjúkrunarstjórnun um víða veröld. Delaney hefur haft mótandi áhrif á stefnumótun í upplýsingatækni á heilbrigðissviði og var m.a. í ráðgjafateymi Baracks Obama, forseta Bandaríkjanna, um þessi mál.