Daníel Pétur Daníelsson (ljósm. Jan Dancak)
Daníel Pétur Daníelsson (ljósm. Jan Dancak)

Daníel Pétur Daníelsson, útskrifaður nemandi úr MA-námi í ferðamálafræði við Háskólann á Hólum, hefur hlotið lokaverkefnisverðlaun Samtaka ferðaþjónustunnar (SAF) og Rannsóknamiðstöðvar ferðamála (RMF) fyrir meistararitgerð sína Ræs! – Síld! Rannsókn á sambandi Síldarminjasafns Íslands við samfélagið í Siglufirði.

Ritgerðin var unnin til MA-prófs í ferðamálafræði við Háskólann á Hólum undir leiðsögn Laufeyjar Haraldsdóttur, lektors við Ferðamáladeild Háskóla Íslands á Hólum. Verðlaunin eru veitt árlega fyrir framúrskarandi lokaverkefni á sviði ferðamála og ferðaþjónustu á Íslandi og er markmið þeirra að vekja athygli á vönduðum rannsóknum ungs fræðafólks og mikilvægi nýrrar þekkingar fyrir greinina.

Í rannsókn sinni skoðar Daníel samband Síldarminjasafns Íslands við nærsamfélagið á Siglufirði og leitast við að varpa ljósi á hvaða þættir geti stuðlað að sterkari tengslum milli safnsins og heimafólks. Rannsóknin er eigindleg tilfellarannsókn þar sem megin gagnasöfnun fór fram með rýnihópaviðtölum.

Niðurstöðurnar sýna að Síldarminjasafnið gegnir mikilvægu hlutverki í samfélaginu á Siglufirði, bæði sem varðveisluaðili menningararfs og sem áfangastaður ferðamanna. Jafnframt kemur fram að eitt af helstu verkefnum safna sé að efla tengsl sín við heimabyggðina og ná til fjölbreyttra hópa samfélagsins. Rannsókn Daníels bendir til þess að fjölbreytt viðburðahald og aukið samstarf við heimafólk geti skipt sköpum þegar kemur að því að dýpka tengsl safna við nærsamfélagið, efla samfélagsþátttöku og styrkja tilfinningu fólks fyrir menningararfi sínum og staðartengslum.

Að mati dómnefndar er ritgerðin vel skrifuð, skýr og faglega unnin. Sérstaklega er bent á að hún varpi mikilvægu ljósi á tengsl safnsins við ólíka hópa í samfélaginu og sýni hvernig virkt samband við íbúa getur aukið gildi safnsins bæði sem menningararfsstofnun og sem hluti af áfangastaðnum Siglufirði.

Verðlaunin eru ánægjuleg viðurkenning á framlagi Daníels til rannsókna á sviði ferðamála og um leið staðfesting á því öfluga rannsóknar- og fræðastarfi sem unnið er innan Ferðamáladeildar Háskóla Íslands á Hólum.

Háskóli Íslands á Hólum óskar Daníel Pétri innilega til hamingju með þennan glæsilega árangur.

Fréttin er byggð á umfjöllun Rannsóknamiðstöðvar ferðamála um lokaverkefnisverðlaun SAF og RMF.

Hægt að lesa fréttina á rmf.is hér

Deila

Efnisorð
Var efnið hjálplegt?

Hvers vegna var efnið ekki hjálplegt?

Takmarkað við 250 stafabil