Hópur vísindamanna innan Háskóla Íslands hefur síðustu misseri unnið að því að nýta aðferðir hugsandi skólastofu (e. thinking classroom) í námskeiðinu Stærðfræðigreining I við Verkfræði- og náttúruvísindasvið til að bæta námsárangur nemenda sem áður höfðu fallið í námskeiðinu. Aðferðirnar hafa gefið góða raun og hafa verið teknar upp í fleiri námskeiðum innan skólans.
Hugsandi skólastofa felur í sér að kennsluháttum er breytt frá hefðbundinni, kennaramiðaðri nálgun yfir í nemendamiðaða kennslu þar sem nemendur eru virkir þátttakendur í eigin námi. Í stað þess að meðtaka og skrá hjá sér upplýsingar í fyrirlestrum er nemendum gert að vinna saman að verkefnum í litlum hópum og beita gagnrýninni og skapandi hugsun við verkefnavinnuna.
Aðferðir hugsandi skólastofu voru upphaflega þróaðar fyrir stærðfræðikennslu í grunn- og framhaldsskólum af Peter Liljedahl, prófessor í stærðfræðimenntun við Simon Fraser háskóla í Kanada í samstarfi við kennara þar í landi. Rannsóknarteymið, sem samanstendur af vísindafólki innan Háskóla Íslands og víðar, beinir þó sjónum sínum að því hvernig aðferðir hugsandi skólastofu geti nýst í krefjandi námskeiðum á háskólastigi á borð við stærðfræðigreiningu. „Í stuttu máli erum við að rannsaka hvort og hvernig megi rjúfa hefðbundna fyrirlestrahefð háskólans til að dýpka skilning nemenda í STEM-greinum; raunvísindum, tæknigreinum, verkfræði og stærðfræði,“ segir Bjarnheiður Kristinsdóttir, lektor við Deild faggreinakennslu á Menntavísindasviði.
Meginmarkmið rannsóknarinnar er að kanna hvort þetta vinnulag geti bætt námsárangur og seiglu nemenda, sérstaklega í hópum þar sem námsgeta er blönduð. „Í stað þess að nemendur sem féllu í námskeiðinu Stærðfræðigreining I að hausti þyrftu að bíða til næsta hausts og endurtaka sama námskeið hönnuðum við nýtt námskeið með aðferðir hugsandi skólastofu í forgrunni sem heitir „Styrktaræfingar í Stærðfræðigreiningu I“ og buðum upp á það vorið 2025 fyrir þá nemendur sem höfðu fallið í faginu,“ segir hún.
Hefðbundnir fyrirlestrar skiluðu ekki árangri
Rannsóknin á rætur sínar í aukinni eftirspurn eftir virkum kennsluháttum innan STEM-greina til að bæta námsárangur og koma í veg fyrir brottfall. Rannsóknir hafa sýnt að þótt háskólanemar telji sig oft læra betur í fyrirlestrum, mælist raunverulegur námsárangur meiri þegar kennt er með virkum aðferðum.
„Þetta misræmi milli upplifunar og árangurs ýtti undir áhuga okkar á að prófa aðferðir hugsandi skólastofu skipulega á háskólastigi. Við Ingólfur Gíslason, lektor í stærðfræðimenntun við Menntavísindasvið, höfðum kynnst rannsóknum Peter Liljedahl á aðferðum hugsandi skólastofu og gert tilraunir með þær í framhaldsskólakennslu. Ingólfur byrjaði árið 2016 að kynna þessar aðferðir fyrir kennaranemum og stóð að komu Liljedahl til Íslands í samstarfi við Flöt – samtök stærðfræðikennara sumarið 2019.“
Eftir að hafa sótt kynningu hjá Ingólfi urðu Anna Helga Jónsdóttir og Sigrún Helga Lund, prófessorar í tölfræði við Verkfræði- og náttúruvísindasvið, brautryðjendur í að innleiða grunnatriði vinnulags hugsandi skólastofu í dæmatíma í tölfræði og líkindareikningi, en þetta vinnulag hafði ekki verið viðhaft í heilu námskeiði áður.
Þegar 115 nemendur féllu í Stærðfræðigreiningu I haustið 2024 skapaðist tækifæri til að innleiða fleira en einungis grunnþætti vinnulags hugsandi skólastofu og bjóða upp á nýstárlegt úrræði vorið 2025. „Fremur en að endurtaka hefðbundna fyrirlestra, sem höfðu ekki skilað þessum nemendum árangri, var ákveðið að nýta aðferðir hugsandi skólastofu til að efla þrautseigju þeirra og skilning. Þörfin á að finna árangursríkar leiðir til að styðja við nemendur sem standa frammi fyrir áskorunum í grunnnámi var því beinn hvati að verkefninu,“ segir Bjarnheiður.
Áhuginn liggur á mótum stærðfræði og kennslufræði
Bjarnheiður hefur brennandi áhuga á viðfangsefni rannsóknarinnar en áhugi hennar liggur fyrst og fremst á mótum stærðfræði og kennslufræði, með áherslu á virka kennsluhætti, verkefnasmíð og hvernig nýta megi stafræna tækni til að styðja við nám nemenda í stærðfræði.
„Mér finnst spennandi að skoða allra handa aðferðir til að vinna með flókið námsefni á þann hátt að nemendur öðlist aðgang og tækifæri til að skilja það til hlítar. Til að þetta takist þarf yfirleitt að færa kennarann úr sviðsljósinu og yfir í hlutverk leiðbeinanda. Líkt og aðferðir hugsandi skólastofu snúast flestar þessara aðferða um að efla samvinnu og samtal í skólastofunni og þannig bæta námsumhverfið sjálft, bæði hvað varðar aðstöðu til náms og félagsleg tengsl milli nemenda,“ segir Bjarnheiður sem hefur komið að smíði nýstárlegra verkefna fyrir stærðfræðikennslu á grunn-, framhalds- og háskólastigi áður.
