Andrea Lilja

Starfsþjálfun við Viðskiptafræðideild Háskóla Íslands gefur nemendum tækifæri til að tengja námið við raunveruleg verkefni, öðlast hagnýta reynslu og mynda tengsl í atvinnulífinu. Deildin er í samstarfi við rúmlega 70 fyrirtæki, ráðuneyti og stofnanir sem taka á móti nemendum í grunn- og meistaranámi. Eitt þessara fyrirtækja er Coca-Cola á Íslandi. Við ræddum við Andreu Lilju Ottósdóttur, framkvæmdastjóra mannauðs, um samstarfið og gildi starfsþjálfunar fyrir bæði nemendur og fyrirtæki.

Við hjá Coca-Cola á Íslandi höfum síðustu ár verið í góðu samstarfi við Háskóla Íslands og tekið á móti nemendum í starfsþjálfun. Nemendur hafa fengið tækifæri til að vinna að fjölbreyttum verkefnum á ólíkum sviðum. Þegar við tökum á móti þeim í starfsþjálfun skiptir það okkur miklu máli að þau fái sem mesta reynslu á tímabilinu, verðug verkefni að fást við og góða innsýn inn í starfsemina. Við leggjum okkur því fram við að upplýsa og fræða nemendur eins vel og hægt er á þessum tíma.

Upplifun okkar af því að fá nemendur í starfsþjálfun hefur verið mjög góð og við höfum náð að skapa verðmæta reynslu í gegnum starfsþjálfunina, bæði fyrir nemendur og okkur sem fyrirtæki. Þau koma inn með ferska sýn á hlutina og skemmtilega vinkla á verkefnin.

Okkur finnst mjög mikilvægt að tengja atvinnulífið og háskólastarfið vel saman. Þannig byggjum við brú sem hjálpar ungu fólki að stíga öruggari skref út á vinnumarkaðinn, á sama tíma og við í atvinnulífinu fáum tækifæri til að læra af nýrri hugsun og ferskum sjónarhornum.

Það er gaman að segja frá því að nemendur sem hafa komið til okkar í starfsþjálfun hafa í einhverjum tilfellum fengið starf hjá okkur í kjölfarið. Önnur hafa farið áfram út í atvinnulífið hjá öðrum fyrirtækjum, með reynsluna úr starfsþjálfuninni í farteskinu og okkur sem meðmælendur. Starfsþjálfunin er því dýrmætt tækifæri til þess að koma sér á framfæri, öðlast reynslu og mynda tengsl.

Að mínu mati er starfsþjálfun gríðarlega mikilvægur hluti af háskólanáminu. Hún gefur nemendum breiðari sýn á námsefnið og tækifæri til þess að nýta það sem þau hafa lært í náminu við raunverulegar aðstæður. Sjálf lærði ég mannauðsstjórnun í Osló og fór í starfsþjálfun hjá stóru alþjóðlegu verkfræðifyrirtæki samhliða náminu. Það var ein besta ákvörðun sem ég tók á mínum náms- og starfsferli, því starfsþjálfunin átti eftir að verða minn aðgangsmiði út í atvinnulífið. Að starfsþjálfun lokinni var mér boðið starf á mannauðsviði í sama fyrirtæki og þar hófst formlega minn starfsferill í mannauðsmálum.

Starfsþjálfun krefst þess að sjálfsögðu að nemandinn fjárfesti tíma sínum og vinnu í verkefnin. Það getur verið krefjandi að samræma vinnu, starfsþjálfun og nám, en með góðu skipulagi og opnu hugarfari er þetta ómetanlegt tækifæri sem mér finnst að öll ættu að sækjast eftir sem hluti af sínu háskólanámi.

Efnisorð
Var efnið hjálplegt?

Hvers vegna var efnið ekki hjálplegt?

Takmarkað við 250 stafabil